Auglýsingar hins opinbera í héraðsfréttablöðum.
Virðulegi forseti. Ég kem upp til að bera fram fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Er í gildi einhver stefna varðandi auglýsingar hins opinbera í héraðs- og fréttablöðum?“
Af hverju skyldi ég bera þessa spurningu fram? Ég tel að bæjar- og héraðsfréttablöð hér á landi gegni mjög mikilvægu hlutverki í okkar samfélagi og ég hygg að allir hljóti að vera sammála mér í því, þeir sem á annað borð lesa þessi blöð og fylgjast með þeim. Ég er sjálfur áskrifandi að þeim flestum, held ég, og ég verð að segja að þessi blöð eru alveg ómissandi. Þau gefa manni, ef svo má segja, miklu betri upplýsingar um það sem er að gerast úti á landsbyggðinni heldur en hinir fjölmiðlarnir á Íslandi sem eru gefnir út á höfuðborgarsvæðinu. Það er svo sem ekkert undarlegt því að þessi blöð eru úti á landi og eru skrifuð af fólki sem býr úti á landi og það þarf því ekki að koma neinum á óvart.
Ég sat í fjölmiðlanefndinni svokölluðu sem skilaði af sér skýrslu fyrir rétt um ári síðan. Þar er einmitt að finna kafla um þessi blöð. Í skýrslunni kemur fram að árið 2004 voru hér gefin út 23 staðbundin fréttablöð á einum 17 þéttbýlisstöðum víða um land. Í skýrslunni segir að þýðing þessara blaða fyrir staðbundna umræðu verði vart dregin í efa. Þau þjóna því náttúrlega að vera tengiliður milli íbúa, almannavalds og atvinnulífs á þessum stöðum og þau eru mikilvægur staðbundinn umræðuvettvangur. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessi blöð eru mjög mikilvægur vettvangur fyrir tjáningarfrelsið í landinu, að fólk úti á landi geti tjáð sig í einhverjum fjölmiðlum, ekki síst í heimabyggð.
Hins vegar er það þannig, virðulegi forseti, að mörg þessara blaða berjast í bökkum og rekstur þeirra er mjög erfiður. Mörg þeirra hafa því miður lognast út af. Maður heyrir, þegar maður talar við ritstjóra þessara blaða, að starfsemin er erfið og oft og tíðum er nánast um eins konar hugsjónamennsku að ræða. Þeir sem standa að útgáfu þessara blaða gera sér grein fyrir því hversu mikilvæg þau eru fyrir viðkomandi samfélag, hversu mikilvæg þau eru út frá byggða- og menningarsjónarmiðum og ekki síst með tilliti til tjáningarfrelsis.
Hér á Íslandi er ekki neinn opinber stuðningur við útgáfu blaða af þessu tagi. Það má spyrja hvort ekki sé kominn tími til að skoða hvort slíkt væri réttlætanlegt. En hið opinbera gæti hjálpað til með öðrum hætti. Það gæti til að mynda hjálpað til með því að viðhalda einhverri markvissri stefnu um það að hið opinbera auglýsi í þessum fjölmiðlum þegar um er að ræða auglýsingar sem varða fólk sem býr á þessum stöðum og les þessi blöð. Það er kannski meginástæðan fyrir því að ég kem upp í dag og ber fram þessa fyrirspurn.