Útræðisréttur strandjarða.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður spyr mig spurningar:
„Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að útræðisréttur strandjarða verði virtur að nýju?“
Í umræðu um þessi mál er því stundum haldið fram að með lögum um stjórn fiskveiða frá árinu 1984 hafi strandjarðir verið sviptar rétti umfram aðra. Það er hins vegar vafasöm fullyrðing. Frá upphafi byggðar hér á landi voru veiðar utan netlaga öllum heimilar. Þegar ákveðið var í upphafi árs 1984 að taka upp nýja skipan við stjórn fiskveiða var ákveðið hér á Alþingi að veiðiheimildir skyldu bundnar við fiskiskip en ekki jarðeignir, hafnir eða byggðarlög. Hafi jarðeigendur gert út báta á þeim tíma sem lagður var til grundvallar við úthlutun veiðiheimilda þá hafa þeir fengið úthlutun í samræmi við aflareynslu báta sinna. Ekkert er því til fyrirstöðu að bændur rói frá jörðum sínum og það viðurkennt að þeir einir geti stundað veiðar innan netlaga jarða sinna, hafi þeir til þess nauðsynlegar veiðiheimildir eða fiskveiðirétt að öðru leyti. Annað mál er að hér virðist ekki ljóst hver netlög séu þegar til fiskveiða koma. Það hafa gengið dómar sem gera það að verkum að spurningin um hver þessi netlög séu er enn þá uppi að því er mér sýnist og þegar ég fer yfir ræðu hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar þá er mér alls ekki ljóst nákvæmlega hvaða útræðisrétt hv. þingmaður er að tala um. Er hann að tala almennt um að eigendur strandjarða hafi sérstakan fiskveiðirétt í landi okkar eða er hv. þingmaður að tala um að þessi fiskveiðiréttur nái eingöngu til veiða innan netlaga?
Það er alveg ljóst að þeir sem hafa gagnrýnt þessi mál út frá sjónarhóli eigenda sjávarjarða hafa beitt alveg tvenns konar rökum. Það hefur m.a. komið fram í málflutningi tiltekinna lögfræðinga að þeir hafa haft uppi algerlega tvö sjónarmið í þessum efnum. Annars vegar eru þeir sem hafa sagt sem svo: Það er þannig að þeir sem eru eigendur strandjarða eða sjávarjarða eiga rétt til veiða innan netlaga sinna alveg án tillits til þess hvort þeir eru með grásleppuleyfi eða hvort þeir eru með kvóta eða annan fiskveiðirétt. Svo eru aðrir sem halda því fram að núverandi fyrirkomulag sé brot á mannréttindum og að þetta sé eignaupptaka vegna þess að bændur á sjávarjörðum eigi miklu víðtækari atvinnuréttindi en sem þessu nemur. Þetta er það sjónarmið sem mér sýnist menn halda mjög fram núna, þ.e. að eigendur sjávarjarða í landinu eigi almennan fiskveiðirétt út frá jörðum sínum og það sé þá ekki bundið við netlögin. Þetta er auðvitað miklu stærra mál sem gæti haft veruleg áhrif, eins og hv. þingmaður sagði áðan, ef menn gætu átt sjálfstæðan rétt langt umfram fiskveiðirétt innan netlaga sinna.
Það var hins vegar athyglisvert að hv. þingmaður talaði um eignarrétt í þessu sambandi og hann lítur greinilega þannig á að rétturinn til fiskveiða sé þar með eignarréttur. Hann er ekki að tala um atvinnuréttindi, eins og til að mynda prófessor Sigurður Líndal hefur talað um í þessu sambandi. Hann er að tala um miklu víðtækari réttindi. Hv. þingmaður talaði algerlega fortakslaust og án þess að hafa neina fyrirvara á því að um eignarrétt í þessu sambandi (SigurjÞ: Ætlarðu að svara þessu eða ekki?) og ég hef verið að svara spurningunni, hv. þingmaður. Hv. þingmaður telur hins vegar að líki honum ekki svarið og sé ekki sammála því þá sé það ekki svar. En hv. þingmaður verður að átta sig á því að það kunna að vera uppi álitamál í þessum efnum og ég var einfaldlega að rukka hv. þingmann um að hann reyndi t.d. að útskýra fyrir mér þessa einföldu spurningu sem ég hélt a.m.k. að menn ættu að geta gengið út frá að væri forsendan í umræðunni, hvort við værum að tala um fiskveiðirétt sem hv. þingmaður talar algerlega undanbragðalaust um sem eignarrétt, en það eru nokkur tíðindi í þessari umræðu að eignarrétturinn, sem hann kallar svo, nái ekki bara til veiða í netlögum heldur sé líka hinn almenni veiðiréttur ef menn eiga sjávarjarðir. Ég tel því að það sé ekki ástæða til að breyta þeirri framkvæmd sem hefur verið og svarið verður þá væntanlega mjög skýrt, er það ekki, hv. þingmaður? Ég tel að þau lög sem núna gilda geri það að verkum að þeir sem séu eigendur sjávarjarða hafi ekki sjálfstæðan fiskveiðirétt umfram það sem almenn lög og reglur kveða á um.