Ákvörðun loðnukvóta.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar sem eru í fyrsta lagi:
„Hefur verið tekið mið af því við ákvörðun loðnukvóta nú að sökum hlýnandi sjávar kann fæðuþörf botnfiska hér við land að vera mun meiri en í meðalári eða á kuldaskeiðum?“
Svarið er að ekki hefur sérstaklega verið tekið mið af hlýnun sjávar við ákvörðun loðnukvóta. En það er rétt, sem hv. þingmaður sagði, að hugsanlega er fæðuþörf fiska meiri við hátt hitastig en lágt. Þegar aflaregla fyrir loðnu var ákveðin árið 1980 var ákveðið að ekki skyldi taka meira úr stofninum en svo að eftir yrðu að lágmarki 400.000 tonn til að hrygna. Ákvörðun um að skilja eftir 400.000 tonn byggir ekki á þekktu sambandi stærðar hrygningarstofns og nýliðunar enda var það ekki þekkt þegar þessi aflaregla kom til sögunnar. Þeirri stefnu að tryggja lágmarksstærð hrygningarstofnsins með þessum hætti til að stuðla að öruggri nýliðun var hins vegar einnig ætlað að taka tillit til afráns úr loðnustofninum og þar með talið breytilegu afráni vegna breytilegra umhverfisþátta.
Það hefur sýnt sig að lágmarksstærð hrygningarstofns hefur yfirleitt gefið af sér góða nýliðun síðasta áratug, eins og menn sjá af þeim tölum sem við höfum um veiðina ár eftir ár. Ég vek athygli á því sem hv. þm. Jóhann Ársælsson hefur bent á í þessu samhengi.
Jafnframt er rétt að minna á að samhliða breytingum á ástandi sjávar á undanförnum árum hefur orðið breyting á útbreiðslu loðnunnar að sumri og hausti við Ísland. Niðurstöður hafa sýnt að þorskurinn hefur verið nokkuð rýr á síðustu árum. Meðalþyngd aldursflokka hefur verið lægri en ætla mætti með tilliti til stærðar loðnustofnsins. Sumir hafa viljað kenna óhæfilegum loðnuveiðum um þetta. En einnig má leiða rök að öðru.
Við hlýnun síðustu ára hefur það gerst að hrygningartími loðnunnar hefur færst fram í tímann og rekbrautir loðnuseiða hafa breyst. Afleiðingarnar eru m.a. þær að loðna hefur ekki alist upp við norðanvert landið síðustu þrjú til fjögur árin. Hrygningarloðnan kemur seint til baka af ætissvæðum norður í hafi og hefur þess utan gengið dýpra fyrir Norðausturland og Austfirði en áður. Vegna þess að fullorðni þorskurinn eltir hrygningarloðnuna ekki út fyrir landgrunnskantinn á þeim slóðum gefur auga leið að hann hefur einnig haft mjög skertan aðgang að feitri og fullorðinni loðnu, miðað við það sem áður var. Smærri þorskur hefur nær enga smáloðnu fengið þann tíma.
Með þessum hætti hefur því aðgengi að loðnunni, sem fæðu fyrir aðra nytjastofna, verið skert til muna. Ég vil jafnframt bæta við þetta og segja að athyglisvert er að göngumynstur loðnunnar á þessari vertíð hefur verið nokkuð annað. Við vitum að við mældum mun minni loðnustofn en undanfarin ár. En göngumynstrið hefur hins vegar verið öðruvísi. Ég vil ekki endilega fullyrða að það sé vegna þess að ég tók ákvörðun, eins og menn vita, varðandi flottrollið. Ýmsir halda því fram að það sé ástæðan fyrir því að göngumynstrið hafi breyst. En það er hins vegar athyglisvert að loðnan hefur gengið inn á Faxaflóa og jafnvel inn á Breiðafjörð.
Í annan stað spurði hv. þingmaður:
„Hefur verið rannsakað hvort umfangsmiklar loðnuveiðar um áratuga skeið séu farnar að hafa áhrif til hins verra á vistkerfið á landgrunninu og þá fæðuframboð fyrir hina verðmætu botnfiskstofna?“
Hér er um að ræða margslungna spurningu. Í sjálfu sér verður henni seint svarað til fullnustu. Skynsamleg nýting loðnustofnsins er þó afar mikilvægt málefni og um þessar mundir er unnið að rannsóknum á samspili þessara tegunda. En þeim er ekki lokið. Þótt eflaust megi nálgast spurningu fyrirspyrjanda með slíkum rannsóknum verður erfitt að meta með vissu áhrif veiðanna. Fyrir því liggja ýmsar ástæður svo sem takmörkuð gögn um magn loðnunnar áður en veiðar hófust. Því er erfitt að bera saman nútímann og fyrri tíma.
Í starfsáætlun Hafrannsóknastofnunar á þessu ári eru slíkar rannsóknir settar í forgang, m.a. vegna þess að við lögðum til aukið fjármagn til stofnunarinnar í þessum tilgangi. Það verður m.a. gert með gagngerðu átaki í rannsóknum á vistkerfi Íslands af ætisslóð loðnu.
Þriðja spurningin sem hv. þingmaður spurði var:
„Hefur ráðherra tekið mið af því við ákvörðun loðnukvóta að sennilega verða hlutfallslega mjög mikil afföll á loðnuhrognum nú þegar mikið er af ýsu á grunnslóðinni umhverfis landið?“
Það hefur ekki verið tekið mið af magni ýsu við úthlutun loðnukvóta. Eins og ég svaraði áðan þegar ég var að fjalla um fyrstu spurninguna þá var gert ráð fyrir að 400.000 tonn væru skilin eftir til hrygningar. Ég vek athygli á að undanfarin fjögur eða fimm ár höfum við að jafnaði skilið eftir um 530 þús. tonn, miðað við þær mælingar sem við gerðum og miðað við þær upplýsingar sem við höfum. Talið er að þetta magn, þ.e. 400.000 tonnin, hafi tryggt nægilegt mikið magn hrogna og seiða til að viðhalda stofninum eins og ég sagði áðan.
Um hlutfall loðnuhrogna sem fæðu ýsu og annarra nytjastofna er því miður lítið vitað. Því er ógjörningur að fullyrða hvort sérstakrar aðgæslu sé þörf. Til að það yrði hægt þyrfti að rannsaka það mál sérstaklega, m.a. með því að sinna fæðurannsóknum fyrir Suður- og Vesturlandi í apríl og maí, á þeim tíma sem hrogn loðnunnar eru botnföst.