132. löggjafarþing — 79. fundur,  8. mars 2006.

Ákvörðun loðnukvóta.

525. mál
[14:59]
Hlusta

Jón Kr. Óskarsson (Sf):

Frú forseti. Þetta er náttúrlega tengt fyrri fyrirspurn. En ég velti því fyrir mér, og veit að margir sjómenn og útgerðarmenn hafa velt því fyrir sér í mörg ár, hvort ekki séu tengsl á milli stækkunar á hvalastofnum og minnkandi loðnuveiða. Ég held að það gæti vel verið. Sjómenn vita kannski best hvernig þeir hlutir eru.