Malarnám í Ingólfsfjalli.
Virðulegi forseti. Dapurlegt var svarið hjá hæstv. ráðherra umhverfismála. Við malarnám síðustu ára hefur ásýnd Ingólfsfjalls gjörbreyst. Það er í sjálfu sér bæði rannsóknarefni og hneykslanlegt að stjórnvöld hafi látið námið viðgangast með þessum hætti án þess að grípa fyrr í taumana, án þess að grípa fyrr til mótvægisaðgerða til að varðveita ásýnd fjallsins sem er merkilegt fjall og kennileiti Suðurlands alls og kennt við Ingólf sjálfan. Því er grátlegt að horfa upp á aðgerðaleysi umhverfisyfirvalda í málinu og ástæða til að spyrja hæstv. umhverfisráðherra hvort farið hafi fram á hennar vegum raunveruleg athugun á öðrum kostum og öðrum námasvæðum af því að auðvitað þarf að finna námur sem standa undir uppbyggingu á svæðinu sem ekki er of langt í burtu og það er alltaf hægt að finna bilið á milli þess að ganga svo nærri náttúrunni eða nýta hana af skynsemi og með hófsemd að augnamiði. (Forseti hringir.) Framkvæmd umhverfisyfirvalda er rannsóknarefni í sjálfu sér í þessu máli.