Starfsemi og hæfi stjórnenda Kauphallarinnar.
Virðulegi forseti. Nýlega kom fram í svari viðskiptaráðherra við fyrirspurn minni um lánveitingar til stjórnenda bankastofnana að á árunum 2003–2004 hefðu bankarnir þrír veitt lán til stjórnenda bankanna samtals að fjárhæð yfir 8,2 milljarða kr. Athygli vekur að í stjórn Kauphallarinnar sem veitti ráðherra svörin við fyrirspurninni sitja m.a. lykilstjórnendur í bönkunum sem fyrirspurnin beindist að sem vekur vissulega upp tortryggni og spurningu um hagsmunaárekstra. Svörin vekja ekki síst tortryggni þar sem ýmsir þeirra sem sitja í stjórn Kauphallarinnar tengjast viðskiptum við hana og ýmsir þeirra, m.a. stjórnarformaðurinn, er umfangsmikill og mjög virkur í viðskiptum með hlutabréf í þeirri lánastofnun sem hann stýrir og því í hæsta máta óeðlilegt að ráðandi fjármálafyrirtæki eða stærstu lífeyrissjóðirnir setji stjórnendur fyrirtækja sinna í stjórn Kauphallarinnar. Það hlýtur að vekja upp spurningar um hvort seta þeirra geti ekki valdið hagsmunaárekstrum og dregið úr trúverðugleika markaðarins.
Sömuleiðis vaknar eðlilega sú spurning hvort ekki sé rétt að í stjórn Kauphallarinnar eigi sæti óháðir aðilar og óheimilt verði að lykilstjórnendur þeirra félaga sem skráð eru í Kauphöllinni eigi sæti í stjórn, en um það er spurt í þeirri fyrirspurn sem ég beini til ráðherra. Óháðir aðilar sitja t.d. í stjórn dönsku og norsku kauphallanna, m.a. fólk úr seðlabönkunum og háskólunum.
Gagnrýni á þessa setu stjórnenda í stjórn Kauphallarinnar hefur stjórnarformaður hennar svarað með því að stjórnarseta þeirra sé fullkomlega eðlileg þar sem stjórn Kauphallarinnar hafi framselt ákvörðunarvald til forstjóra í eftirlitsmálum, m.a. beitingu viðurlaga vegna brota á reglum Kauphallarinnar. Þessi röksemd heldur ekki í ljósi ófrávíkjanlegra reglna laga um valdsvið félagsstjórnar og framkvæmdastjóra í hlutafélögum svo og ráðningarsambands forstjóra Kauphallarinnar við stjórnina og boðvald hennar yfir forstjóra.
Áslaug Björgvinsdóttir, dósent í félagsfræði, fjallaði m.a. um þetta í Morgunblaðinu fyrir rúmum tveimur árum og niðurstaða hennar er að stjórninni beri að lögum að taka ákvarðanir á sviði eftirlits Kauphallarinnar, m.a. viðurlagaákvarðanir sem hljóta að teljast mikilvægar ákvarðanir og þar sem forstjórinn er settur undir stjórnina og á m.a. starf sitt og launakjör undir henni sé þessi skipan ekki til þess fallin að auka traust. Um það er því spurt hver sé skoðun ráðherra á þessu framsali á valdheimild stjórnar til forstjóra í eftirlitsmálum og hver sé afstaða Fjármálaeftirlitsins til þessa? Mín skoðun er sú að þetta standist ekki lög.
Loks er spurt hvort ráðherra muni í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins leggja til að ákvörðunarvald um opinbera skráningu og viðurlagaheimildir færist frá Kauphöllinni til Fjármálaeftirlitsins. En af hálfu Evrópusambandsins hefur verið unnið að því að draga úr hlutverki kauphalla á sviði yfirstjórnar og reglusetningar á (Forseti hringir.) sviði opinberrar skráningar, m.a. vegna hættunnar á vandamálum (Forseti hringir.) vegna hagsmunaárekstra.