Upplýsingar frá Fjármálaeftirlitinu.
Virðulegi forseti. Það kemur ekkert á óvart að illa gangi að fá upplýsingar um einhver mál sem varða hluti sem tengjast embættisfærslu hæstv. viðskiptaráðherra. Ég er sjálfur með tvö svona mál í gangi. Ég bað um upplýsingar um ársreikninga fiskeldisfyrirtækis norður í landi sem fór á hausinn og var sett yfir á Nýsköpunarsjóð og tapaði tugum ef ekki hundruðum milljóna af peningum skattborgara. Ég sendi fyrst þrjár beiðnir til Nýsköpunarsjóðs en fékk ekki einu sinni svar. Síðan hef ég beðið ríkisendurskoðanda um að fara í málið og hann hefur ekki enn þá náð neinum árangri í því og er þó búinn að vera með málið á skrifborði sínu í fleiri mánuði.
Annað mál sem ég get nefnt er að hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson mætti í viðtal á Útvarpi Sögu einhvern tíma fyrir jól og kom þar með mjög alvarlegar ásakanir eða upplýsingar um starfshætti sem tengdust fyrrverandi forstjóra Byggðastofnunar. Ég sendi að sjálfsögðu bréf til ríkislögreglustjóra og bað hann um að athuga það. Síðan eru liðnir margir mánuðir en ekkert hefur heyrst frá ríkislögreglustjóra enn. Þetta er alveg með ólíkindum, það er eins og alltaf sé einhver stífla í kerfinu þegar hæstv. (Forseti hringir.) viðskiptaráðherra er annars vegar.