132. löggjafarþing — 81. fundur,  9. mars 2006.

Framtíð Listdansskóla Íslands.

[10:35]
Hlusta

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Það er óheppileg tilviljun að Listdansskóli Íslands er ekki stofnaður með lögum, um hann eru ekki lög þannig að hann tilheyrir menntamálaráðuneytinu svo sem eins og hver önnur hjáleiga og menntamálaráðherra telur sig vera einvald yfir þeim skóla og ráða örlögum hans algerlega sjálf. Það veldur m.a. því að þingmenn eiga erfitt með að veita ráðherranum aðhald í þessum efnum sem þó er skylda þeirra að landslögum og við höfum þurft að ræða um málefni Listdansskólans og málefni listdansnáms í landinu utan hjá í umræðum um störf þingsins eins og nú eða í miðri fjárlagaumræðu sem fjallar um margt annað eins og menn vita. Það er kannski kominn tími til í tilefni af þessari ályktun foreldra að taka sérstaka umræðu um Listdansskólann þegar hæstv. menntamálaráðherra má vera að því fyrir miklum ferðum og önnum í starfi sínu fyrir ráðuneyti sitt og önnur ráðuneyti og stjórnsýsluna í landinu.

Ég tek undir með síðasta hv. ræðumanni að svo virðist vera að menntamálaráðherra hafi ekki tekist að standa við sín eigin fyrirheit sem hún gaf um að þessi mál væru í góðu lagi og þetta væri allt á fínum vegi sem er hið eilífa og stöðuga svar við spurningum um Listdansskólann og að samningar hennar til að einkavæða þetta nám í landinu hafa ekki tekist. Það sjáum við af ályktun foreldranna og það er illt að þurfa að segja frá því vegna þess að eitt af hinum brýnu vandamálum í þessu var auðvitað það að tryggja nemendum þann rétt sem þeir eiga skilið og það á ekki að hverfa í upphlaupi menntamálaráðherra í þessu efni.