Framtíð Listdansskóla Íslands.
Hæstv. forseti. Ef ég man rétt var það í ágústmánuði síðasta haust á fyrsta starfsmannafundi haustsins í Listdansskóla Íslands að fulltrúar úr menntamálaráðuneytinu voru gerðir út með þann boðskap hæstv. menntamálaráðherra að til stæði að leggja Listdansskólann niður og einkavæða starfsemina, þ.e. að því marki sem hún yrði til. Eitthvað af starfseminni átti að hverfa inn í aðra skóla en öll áform voru hins vegar í skötulíki eins og nú er að koma á daginn.
Þegar farið var að gaumgæfa þessi mál, ræða þau m.a. á Alþingi og varpa ljósi á líklegar afleiðingar þeirrar ákvörðunar, varð flestum ljóst í hvert óefni stefndi og nú hefur það komið á daginn. Ég tel mjög mikilvægt að það verði tekið til mjög alvarlegrar skoðunar í ríkisstjórninni að endurskoða fyrri áform, að hætta við einkavæðingu Listdansskólans og láta hann starfa áfram í því formi sem áður var við lýði og efla þá starfsemi í stað þess að brjóta hana niður.