Framtíð Listdansskóla Íslands.
Virðulegi forseti. Ég skil það svo sem ágætlega að hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir taki málið upp enda verðum við að hlusta á áhyggjur foreldrafélags skólans og mér þykir að hv. þingmaður hafi í fyrri ræðu sinni farið varfærnislega í málið vegna þess að hún vissi að hæstv. ráðherra væri ekki hér.
Mér finnst hins vegar mjög ósmekklegt, það sem nokkrir hv. þingmenn hafa gert, að ráðast á hæstv. menntamálaráðherra fyrir að vera fjarverandi. Hæstv. ráðherra vissi ekki af því að það ætti að taka þetta mál upp og ég efast ekki um að hún hefur gildar ástæður fyrir því að koma ekki hingað í þingsal núna. Eins og kom fram hjá hv. þm. Birgi Ármannssyni geta þingmenn að sjálfsögðu tekið mál upp án þess að hæstv. ráðherrar séu viðstaddir en ég held að við ættum að bíða róleg eftir því að hæstv. menntamálaráðherra gefist færi á því að skýra frá stöðu mála. Ég efast ekki um að hún hefur góðar og gildar skýringar á því hver staðan er. Ég veit að hæstv. ráðherra mun ekki skorast undan því, hún hefur ekki gert það hingað til. Ég vil því ítreka að mér finnst ósmekklegt að ráðast á hæstv. menntamálaráðherra með þessum hætti að henni fjarstaddri.