Norræna ráðherranefndin 2005.
Frú forseti. Ég held áfram ræðu minni frá því fyrir hádegisverðarhlé. Ég ítreka þakkir mínar til þingmanna fyrir málefnalega umræðu um skýrslu samstarfsráðherra. Það er ánægjulegt að heyra hve mikinn áhuga hv. þingmenn hafa á norrænu samstarfi.
Áhugi þingmanna og stjórnmálamanna á norrænu samstarfi fer síður en svo dvínandi, eins og hv. þm. Ögmundur Jónasson spurði um fyrr í umræðunni og fór fram á að ég, sem samstarfsráðherra, færi yfir þau mál. Ég tek undir það með hv. þingmönnum, sem hafa talað af svo miklum áhuga sem raun ber vitni um norræn málefni, að ég tel vaxandi áhuga hjá stjórnmálamönnum á Norðurlöndum á norrænu samstarfi. Við verðum að horfast í augu við að þegar Finnland og Svíþjóð gerðust aðilar að Evrópusambandinu fyrir um 10–11 árum fylgdi í kjölfarið minni áhugi á norrænu samstarfi en áður hafði verið. En nú hefur þetta breyst og mjög gott til þess að vita.
Hv. þm. Ögmundur Jónasson gerði að umtalsefni starfsemi norrænna lánastofnana. Ég vildi aðeins bregðast við þeirri umfjöllun. Þingmanninum hefur orðið tíðrætt um Norræna fjárfestingarbankann en ég vildi einmitt nefna hann sem eitt best heppnaða verkefnið í norræna samstarfinu. Hann er gríðarlega öflug stofnun sem skilað hefur miklum árangri. Ég tel líka að það sé dæmi um hvernig okkur hefur tekist að vinna með Eystrasaltslöndunum, að þau skuli nú orðnir fullgildir aðilar að Norræna fjárfestingarbankanum. Þau starfa þar á jafnréttisgrundvelli með Norðurlöndunum, leggja inn í það samstarf fjármuni á jafnréttisgrundvelli við hin Norðurlöndin og axla jafnframt þær skyldur sem því fylgja.
Það hefur verið gert að sérstöku umtalsefni af þingmönnum Vinstri grænna, bæði hv. þm. Ögmundi Jónassyni og Jóni Bjarnasyni, að hér er fjallað um lán til Orkuveitu Reykjavíkur, Hitaveitu Suðurnesja og síðan Landsvirkjunar. Ég tel um einhvern misskilning að ræða í umfjöllun þeirra um þessi mál. Ég hef skilið þessa umfjöllun svo að sérstaklega hafi verið lánað til vinnu Landsvirkjunar við mat á umhverfisáhrifum. Ég tel að átt hafi verið við það í þessari umfjöllun. Lánið sem fjallað er um í þessum kafla, þar sem er fjallað sérstaklega um lán Norræna fjárfestingarbankans til Íslendinga, er ekki flokkað undir umhverfislán. Það er önnur umfjöllun hér í skýrslunni um umhverfislán. Þar er t.d. nefnt mikilvægt verkefni, þ.e. fráveitustöð í Pétursborg sem gegnir miklu hlutverki við að bæta umhverfið í Eystrasaltinu. Mengunin þar hefur lengi verið mikið vandamál og þau mál hafa heilmikið verið til umfjöllunar, bæði á vettvangi umhverfisráðherranna og samstarfsráðherranna að undanförnu. Ég sótti einmitt sérstakan fund um þau mál í Svíþjóð á síðasta hausti þar sem umhverfisráðherrar landa sem eiga aðild að Eystrasaltsráðinu fjölluðu um þessi mál á óformlegum fundi.
Síðan nefndi hv. þm. Ögmundur Jónasson ýmislegt fleira tengt lánastofnunum Norðurlanda. Ég vildi þá sérstaklega nefna Nopef. Nopef veitir lán til forverkefna, þegar norræn fyrirtæki hyggjast færa út kvíarnar og þá eru veitt áhættulán sem eru talin skipta miklu máli. Bankar eru ekki alltaf tilbúnir í slíka lánastarfsemi. Í þessu sambandi er líka lögð áhersla á lítil og meðalstór fyrirtæki.
Hv. þingmaður nefndi líka Norræna þróunarsjóðinn. Það hefur einfaldlega ekki náðst samstaða meðal Norðurlandanna um að halda þeirri starfsemi áfram. Tekin var um það ákvörðun að ekki yrði lagt meira stofnfé til sjóðsins. Þessi ákvörðun var tekin í ljósi afstöðu danskra stjórnvalda, þ.e. að taka ekki þátt í endurfjármögnun. Í framhaldi af því hóf stjórnin undirbúning að því að starfsemin yrði lögð niður. Hún fól ráðgjafarfyrirtæki að gera úttekt á stöðu sjóðsins og leggja fram hugmyndir um hvernig væri best að standa að þessu verki. Það er ekkert launungarmál að Ísland hefði viljað halda þessu starfi áfram. Ég vil að það komi skýrt fram af minni hálfu.
Hv. þm. Össur Skarphéðinsson nefndi nokkur atriði og varpaði til mín veigamiklum spurningum. Ein var um stöðu sjálfsstjórnarsvæðanna. Ég tek undir það með honum að auðvitað ber að styrkja stöðu sjálfsstjórnarsvæða innan norræna samstarfsins. Það stendur yfir úttekt á stöðu þeirra sem ljúka mun um mitt árið. Við skulum sjá hvað kemur út úr því og hvað hægt er að gera. Það er t.d. ljóst af Færeyinga hálfu að þeir hafa talað mjög skýrt um að þeir vilji borga inn í norræna samstarfið í samræmi við það sem eðlilegt væri af þeirra hálfu. Þeir hafa lagt mikla áherslu á þessi mál.
Síðan nefndi hv. þm. Össur Skarphéðinsson stöðu norræna samstarfsins gagnvart Evrópusambandinu. Staðan er einfaldlega sú að það er ekki á dagskrá ríkisstjórnar Íslands að sækja um inngöngu í Evrópusambandið. Þannig standa málin. Það er heldur ekki á dagskrá hjá norsku ríkisstjórninni sem tók við síðasta haust. Það kom síðast skýrt fram í máli utanríkisráðherra Norðmanna í útvarpi í gær að ekki væri stefnt að því á vettvangi norsku ríkisstjórnarinnar. Það eru staðreyndir þessa máls en hins vegar spennandi umræða, að velta fyrir sér hver þróun þeirra mála verður til framtíðar.
Samstarfið við Eystrasaltslöndin hefur verið mjög ofarlega í norræna samstarfinu frá því að þau fengu sitt frelsi. Norðurlöndin hafa forgangsraðað því samstarfi en það er auðvitað deginum ljósara, eins og kom skýrt fram í ræðu minni og í skýrslunni, að orðið hefur heilmikil breyting á því við inngöngu þeirra í Evrópusambandið. Nú er því samstarfið á jafnréttisgrundvelli og Eystrasaltslöndin þurfa að leggja fjármuni á móti þeim verkefnum sem Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin vilja vinna að saman. Áherslan af hálfu Norðurlandaráðs hefur því færst til Rússlands og Hvíta-Rússlands. Svo höfum við líka áherslur til vesturs.
Hv. þingmaður Magnús Þór Hafsteinsson gerði byggðamálin að umtalsefni og velti fyrir sér hvort þær breytingar sem þar hafa orðið væru að frumkvæði okkar Íslendinga. Ég fullvissa hann um að svo er ekki. Það er ekki þannig að þær breytingar hafi verið að okkar frumkvæði. Þær eru hluti af breytingunum sem verið er að gera á norræna samstarfinu með því að fækka ráðherranefndunum, fækka embættismannanefndunum, gera starfið skilvirkara og nýta fjármuni betur til að við höfum meira svigrúm í verkefni sem koma borgurum Norðurlanda að gagni. Við viljum að fjármunirnir fari meira út í samfélögin. Þetta hefur að mörgu leyti verið of flókið og of dýrt kerfi til að halda utan um þetta.
Ég vildi nefna annað í þessu samhengi. Þegar gerðar voru breytingar á Norðurlandaráði í kringum 1995 og svo aftur nýlega kom gagnrýni á ráðherranefndina, af því tagi að hún breytti ekki neinu hjá sér í kjölfar breytinganna upp úr 1995. Það má segja að nú hafi einmitt orðið slíkar breytingar. Ég tel að þetta séu góðar breytingar og mér finnst gott að heyra hvað þingmenn hafa tekið jákvætt í þær í dag. Að sjálfsögðu ætla menn að gera starfið skilvirkara, sveigjanlegra og nýta fjármuni betur. Það verður auðveldara að forgangsraða verkefnum í stað þess að binda allt í klafa nefnda og stofnana. Þetta finnst mér aðalatriðið í þessum efnum.
Ég vildi nefna í þessu samhengi, af því að hv. þm. Magnús Þór Hafsteinsson gerði sjávarútvegsmálin að umtalsefni, að þar höfum við dæmi um ráðherranefnd sem heldur utan um nokkra málaflokka. Sama ráðherranefndin fjallar um sjávarútvegsmál, landbúnað, skógrækt og matvæli. Þannig vill til að ég á sæti í þeirri ráðherranefnd og starfa þar með mjög mörgum ráðherrum. Þessum málum er auðvitað skipað með ólíkum hætti innan ríkisstjórna hvers lands um sig. Það er ekki einu sinni svo að það sé eins hjá okkur öllum á Norðurlöndunum. Við þurfum líka að taka tillit til þess. Ég vildi greina frá því í þessu samhengi að haldin verður ráðstefna í Noregi um vistvæna nýtingu lifandi sjávarauðlinda nú í júní.
Óformlegt samstarf um byggðamál heldur áfram. Áfram verður starfandi sérstök embættismannanefnd um byggðamál, sem hv. þm. Kristján L. Möller spurði um. Hún verður starfandi áfram og er komin niðurstaða í það mál. En orkumálin falla hins vegar undir embættismannanefnd um iðnaðarmál. Þannig endaði það mál.
Það líður á tímann. Ég vildi nefna varnarmálin. Skýringin á því að þau eru ekki í skýrslunni er að ekki er formlegt samstarf milli Norðurlandanna á því sviði. Það helgast að sjálfsögðu af því að við höfum valið að skipa málum innan hvers lands með ólíkum hætti.
En ég get ekki haft þessi orð fleiri. Ég ítreka þakkir fyrir mjög góðar, fjörugar (Forseti hringir.) og málefnalegar umræður í dag.