132. löggjafarþing — 81. fundur,  9. mars 2006.

Norrænt samstarf 2005.

574. mál
[15:21]
Hlusta

Jón Kr. Óskarsson (Sf):

Frú forseti. Þar sem sá er hér stendur er varaþingmaður Rannveigar Guðmundsdóttur get ég ekki látið hjá líða að vekja athygli þingheims á því hversu hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir skilaði frábæru starfi sem forseti Norðurlandaráðs. Það starf er rómað um öll Norðurlönd og er það sérstaklega ánægjulegt fyrir þingmenn og sérstaklega jafnaðarmenn, samfylkingarfólk, hversu frábæru starfi hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir skilaði sem forseti Norðurlandaráðs.