Norðurskautsmál 2005.
Frú forseti. Ég ætla að fara yfir þá skýrslu sem lögð hefur verið fram á hinu háa Alþingi sem stafar frá Íslandsdeild þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál fyrir árið 2005.
Áður en ég fer yfir meginatriði skýrslunnar vil ég geta þess, úr því að það kemur fram á bls. 7 í skýrslunni, að ég rita undir hana sem formaður Íslandsdeildar, ásamt varaformanninum hv. þingmönnum Magnúsi Stefánssyni og Björgvini G. Sigurðssyni, að ég tók við sem formaður Íslandsdeildarinnar þann 3. október 2005 en skýrslan varðar starfsárið 2005. Það er kannski rétt að taka það fram að sem formaður þessarar Íslandsdeildar hef ég enn sem komið er ekki sótt neinn fund hjá þingmannaráðstefnunni og yfirferðin mun að sjálfsögðu markast dálítið af því að ég er nýtekinn við formennsku af hv. þingmanni og hæstv. sjávarútvegsráðherra, Einari K. Guðfinnssyni, sem gegndi þessu starfi á undan mér. Í þessari umræðu ætla ég því, ef svo má segja, að skauta yfir skýrslu Íslandsdeildar þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál fyrir árið 2005 en mun ekki gera grein fyrir einstökum fundum sem haldnir voru. Gerð er ítarleg grein fyrir þeim í skýrslunni og eins og ég mun koma að í máli mínu á eftir vísa ég til þeirrar umfjöllunar.
Frú forseti. Fyrsta ráðstefna þingmanna og fulltrúa norðurskautssvæða var haldin í Reykjavík árið 1993, en takmörkuð samvinna norðurskautsríkja hafði hafist nokkru áður þegar samþykkt var áætlun um umhverfisvernd á norðurslóðum í Rovaniemi í Finnlandi árið 1991. Ráðstefnan í Reykjavík árið 1993 markaði hins vegar upphafið að stofnun þingmannanefndar um norðurskautsmál sem sett var á laggirnar árið 1994. Nefndin er stjórnarnefnd þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál sem haldin er á tveggja ára fresti. Næsta ráðstefna verður haldin árið 2006. Á ráðstefnunni kemur saman stór hópur þingmanna frá ríkjunum við norðurskaut, sem og sérfræðingar frá ríkisstjórnum, háskólastofnunum og félagasamtökum er láta sig málefni norðursins varða. Eitt meginviðfangsefni þingmannanefndarinnar er að fylgja eftir samþykktum ráðstefnunnar og eins að fylgjast grannt með störfum Norðurskautsráðsins. Þingmannanefndin fundar að jafnaði þrisvar á ári og einn þingmaður frá hverju aðildarríki situr í nefndinni. Þjóðþing Bandaríkjanna, Kanada, Rússlands og Norðurlanda eiga fulltrúa í nefndinni og auk þess á Evrópuþingið fastan fulltrúa. Almennt má segja að helstu verkefni í norðurskautssamstarfi lúti að sjálfbærri þróun og umhverfismálum. Undanfarin ár hefur sérstök áhersla einnig verið lögð á varðveislu menningararfleifðar og lífshátta þeirra þjóðflokka er byggja landsvæðin við norðurskaut, sem og aukna efnahagslega og félagslega velferð og velmegun íbúa norðursins.
Í fyrstu sneru verkefni þingmannanefndarinnar aðallega að ýmsum málum sem við komu stofnun Norðurskautsráðsins árið 1996, en ráðið byggist á sameiginlegri yfirlýsingu og samstarfi ríkisstjórna aðildarríkjanna átta. Nokkur samtök frumbyggja og ólíkra þjóðarbrota á norðurslóðum eiga fasta fulltrúa í ráðinu. Auk þess eiga ýmis ríki, alþjóðasamtök og frjáls félagasamtök áheyrnaraðild að ráðinu. Jafnvel þótt samstarf norðurskautsríkja eigi sér fremur stutta sögu hefur það fætt af sér margvísleg sameiginleg verkefni og stofnanir. Eftirlit með og mat á umhverfi norðurskautssvæðanna hefur frá byrjun verið forgangsverkefni ráðsins. Fjölmargar vandaðar vísindalegar rannsóknir hafa verið gerðar á vegum vinnuhópa ráðsins, m.a. um mengunarhættu, áhrif mengunar á vistkerfi norðurslóða og varðveislu líffræðilegs fjölbreytileika. Á síðari missirum hefur Norðurskautsráðið í auknum mæli sinnt verkefnum sem miða ekki eingöngu að því að vega og meta mengunarhættu, heldur leita leiða við að draga úr mengun á norðurslóðum. Þingmannanefndin hefur á undanförnum árum lagt sérstakan metnað sinn í að hafa frumkvæði að mismunandi verkefnum sem hægt er að leggja fyrir Norðurskautsráðið til framkvæmda.
Íslandsdeild þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál var fyrri hluta árs 2005 skipuð þeim hæstv. sjávarútvegsráðherra Einari K. Guðfinnssyni, sem þá var þingmaður og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, en hann var formaður deildarinnar, hv. þm. Magnúsi Stefánssyni varaformanni, og hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur, sem sat í Íslandsdeildinni fyrir hönd þingflokks Samfylkingarinnar. Varamenn voru sá sem hér stendur ásamt hv. þingmönnum Guðrúnu Ögmundsdóttur og Dagnýju Jónsdóttur. Þann 3. október 2005 voru gerðar breytingar á Íslandsdeildinni og þá tók ég við formennsku í deildinni en ásamt mér sátu þar hv. þingmenn Björgvin G. Sigurðsson og Magnús Stefánsson, sem jafnframt var varaformaður deildarinnar. Varamenn voru kjörnir hv. þingmenn Drífa Hjartardóttir, Valdimar L. Friðriksson og Dagný Jónsdóttir. Á fyrsta fundi nefndarinnar á 132. þingi var sá sem hér stendur kjörinn formaður og Magnús Stefánsson varaformaður. Formaður situr fyrir hönd Íslandsdeildar í þingmannanefndinni, en í forföllum hans situr varaformaður fundi nefndarinnar. Öll Íslandsdeildin sækir ráðstefnuna sem haldin er á tveggja ára fresti. Íslandsdeild kemur saman eftir þörfum og þá gerir formaður grein fyrir starfi þingmannanefndarinnar og fær hún jafnframt upplýsingar um starf Norðurskautsráðsins. Ritari Íslandsdeildar var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir alþjóðaritari. Ritari Íslandsdeildar sá einnig um allan skrifstofurekstur og framkvæmdastjórn þingmannanefndarinnar á árinu.
Ef við víkjum þá að helstu áherslum í málefnastarfi og helstu verkefnum þingmannanefndar um norðurskautsmál á árinu 2005 þá er það að segja, frú forseti, að þingmannanefnd um norðurskautsmál hefur lagt áherslu á að fylgja eftir skýrslu um loftslagsbreytingar á norðurslóðum sem birt var á fundi Norðurskautsráðsins í nóvember árið 2004. Skýrslan er fyrsta svæðisbundna allsherjarrannsókn á loftslagsbreytingum sem birt hefur verið eftir að samningur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar var gerður. Í skýrslunni kemur fram að miklar loftslagsbreytingar hafa orðið á norðurskautssvæðum síðustu áratugi og að loftslag fer ört hlýnandi. Spáð er enn örari þróun í þessa átt á næstu áratugum og stórfelldum áhrifum á náttúru, dýralíf og mannlíf. Norðurslóðir einkennast af viðkvæmum vistkerfum og ljóst þykir að þróunin við norðurskaut sé eins konar fyrirboði þess sem mun gerast annars staðar í heiminum. Í sameiginlegri yfirlýsingu ráðherra Norðurskautsráðsins sem birt var í nóvember 2004 var því lýst yfir að loftslagsbreytingar hefðu í för með sér margvíslega vá fyrir lífshætti og viðurværi íbúa norðurslóða, sem og hættu fyrir tilteknar dýra- og gróðurtegundir. Í sérstöku stefnumótunarskjali skuldbundu ráðherrar sig til að framfylgja tilteknum aðgerðum til að stemma stigu við frekari loftslagsbreytingum. Ráðherrarnir skuldbundu sig einnig til að aðstoða íbúa norðurslóða með skipulögðum hætti við að aðlagast þessum breytingum og leita leiða til að þróa og nýta endurnýtanlega orkugjafa, svo sem vetni. Þingmannanefndin hefur fylgst vel með þróun þessara mála og eftirfylgni við yfirlýsingu ráðherra Norðurskautsráðsins.
Nefndin hefur unnið undirbúningsvinnu við að kanna möguleikana á lagalegum sáttmála um umhverfi og náttúru norðurskauts, í svipuðum anda og suðurskautssáttmálinn sem um árabil hefur verið í gildi. Sáttmáli um umhverfi og náttúru norðurskauts er mun flóknara fyrirbæri en suðurskautssáttmálinn, en hugmyndin að slíkum sáttmála er að hluta til komin vegna spurninga um hversu litlar kvaðir skuldbindingar og samþykktir Norðurskautsráðsins leggja á aðildarríkin. Ýmsir vilja mun strangari reglur um eftirfylgni og framkvæmd ályktana, en erfitt getur reynst að koma slíku í gegn þar eð öll aðildarríkin verða að samþykkja framfylgd ályktana. Með því að leggja vinnu í að kanna möguleikann á gerð norðurskautssáttmála er þingmannanefndin því að hreyfa við nokkuð viðkvæmu málefni innan norðurskautssamstarfsins, sem vakið hefur eftirtekt. Einnig hefur mikið verið rætt um olíuboranir á norðurslóðum, en ljóst er að nýting olíu- og gasauðlinda á norðurslóðum mun margfaldast í komandi framtíð, sérstaklega í Norður-Rússlandi. Ýmsir hafa áhyggjur af þeim umhverfisspjöllum og mengun sem þetta kann að hafa í för með sér, og hefur þingmannanefndin stutt gerð skýrslu um þessi mál sem kanna á mismunandi áhrif slíkra umleitana á vistkerfi norðurslóða.
Meðal annarra mála sem komið hafa til umræðu á fundum þingmannanefndarinnar er áframhaldandi eftirfylgni við skýrslu um sjálfbæra mannlífsþróun á norðurslóðum sem birt var í nóvember árið 2004, en nefndin átti ríkan þátt í að því verkefni var hrint af stað á sínum tíma. Einnig hafa málefni sem tengjast upplýsingatækni á norðurskautssvæðum, þar á meðal fjarkennsla og fjarlækningar, verið tekin fyrir, en nefndin hefur um langa hríð verið því fylgjandi að Norðurskautsráðið geri úttekt á þeim málum. Mikill sigur vannst í þeim málaflokki þegar upplýsingatækni var gerð að einu af forgangsverkefnum Norðurskautsráðsins undir formennsku Íslands 2002–2004. Háskóli norðurslóða fangaði einnig athygli þingmannanefndarinnar á árinu. Nefndarmenn hafa hvatt til eindregins stuðnings norðurskautsríkjanna við skólann og unnið að því að fjárhagslegur rekstur skólans til lengri tíma verði tryggður. Þá hefur nefndin unnið að undirbúningi að þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál sem haldin verður í Kiruna í Svíþjóð í byrjun ágúst 2006.
Eins og fram kemur í skýrslunni hélt þingmannanefndin þrjá fundi á árinu 2005. Hæstv. sjávarútvegsráðherra Einar K. Guðfinnsson sat fyrir hönd Íslandsdeildar fund nefndarinnar í Washington í Bandaríkjunum í byrjun mars og í Pétursborg um miðjan júní. Magnús Stefánsson sótti fund nefndarinnar fyrir hönd Íslandsdeildar í Ósló í lok september. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, ritari nefndarinnar, sótti fundina ásamt þingmönnunum. Í skýrslunni gerð nokkuð ítarleg grein fyrir þeim þremur fundum þar sem þingmannanefndin öll kom saman á árinu, en auk þessara funda voru haldnir vinnuhópafundar um tiltekin málefni. Fyrrverandi formaður nefndarinnar, Einar K. Guðfinnson, og ritari nefndarinnar sóttu einnig ráðstefnur og héldu erindi fyrir hönd þingmannanefndarinnar á alþjóðlegum vettvangi.
Eins og áður segir er gerð nákvæm grein fyrir því sem fram fór á þessum fundum á bls. 3–7 í þessari skýrslu. Ég sé ekki ástæðu til að rekja það nákvæmlega. Þeir hv. þingmenn sem hafa áhuga á því geta kynnt sér það í skýrslunni sem liggur fyrir.
Þess ber að geta að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, ritari nefndarinnar, lét af því starfi fyrir skömmu og vil ég fyrir hönd þeirra sem í nefndinni sitja þakka henni fyrir störf hennar í þágu Íslandsdeildarinnar sem hafa verið afar góð. Hún hefur staðið sig geysilega vel í störfum sínum. Sömuleiðis hlakka ég til samstarfs við nýjan ritara nefndarinnar, Tómas Brynjólfsson, sem nýverið tók til starfa á alþjóðasviði þingsins og mun starfa fyrir Íslandsdeild þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál í náinni framtíð og ég veit að aðrir nefndarmenn, hv. þingmenn Magnús Stefánsson og Björgvin G. Sigurðsson, munu geta tekið undir þessi orð mín.
Frú forseti. Að svo mæltu læt ég að lokið umfjöllun minni um skýrslu Íslandsdeildar þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál fyrir árið 2005. Eins og ég sagði í upphafi kaus ég að skauta yfir skýrsluna í stuttu máli en ég taldi mér skylt að gera það úr því að ég hef tekið við formennsku í deildinni. Öll umfjöllun um störf deildarinnar og þingmannaráðstefnunnar af minni hálfu er náttúrlega þeim annmörkum háð, eins og kom fram í upphafi máls míns, að ég tók við formennsku í nefndinni þann 3. október 2005, þ.e. í lok þess starfsárs sem skýrslan gerir grein fyrir. Ég hef ekki sótt neinn fund á vegum Íslandsdeildarinnar fram til þessa en á því verður breyting í lok þessa mánaðar þegar fundur verður haldinn í Ottawa í Kanada.