Norðurskautsmál 2005.
Hæstv. forseti. Ég tel mikilvægt í þessari umræðu að átta sig á að þótt ríkisstjórn Íslands og íslenskir aðilar eigi í viðræðum við erlenda aðila um frekari uppbyggingu stóriðju og orkufreks iðnaðar á landinu þá hafa engar ákvarðanir verið teknar í þeim efnum, hvorki um framkvæmdir, í hvaða röð eða á hvaða árabili þær framkvæmdir muni eiga sér stað. Það er hins vegar rétt að núverandi ríkisstjórn hefur lýst áhuga á áframhaldandi uppbyggingu orkufreks iðnaðar í landinu. Sú stefna liggur fyrir. Núverandi stjórnarflokkar hafa áhuga á að nýta auðlindir Íslands til að skapa betri lífskjör á komandi árum. Sú stefna er alveg klár.
Það er hins vegar rétt að það komi fram, varðandi einstök verkefni og tímasetningu þeirra, að eðlilega hafa verið gerðir ýmsir fyrirvarar varðandi orkuöflun, varðandi þann ramma sem við þurfum að starfa innan, varðandi umhverfismál og eins varðandi áhrif á efnahagslífið. Menn hafa sett ákveðna fyrirvara þótt ákveðið hafi verið að efna til viðræðna og kanna möguleikana.
Hins vegar verð ég að segja að það kemur mér nokkuð á óvart hvernig Samfylkingin hefur snúist í þessum málum á síðustu dögum og vikum. Löngum hafa innan Samfylkingarinnar verið uppi tvenns konar sjónarmið í þessum efnum, annars vegar sjónarmið þeirra sem vilja nýta auðlindir landsins til uppbyggingar orkufreks iðnaðar og hins vegar þeirra sem hafa sett sig upp á móti öllum slíkum áformum. Nú er eins og andstæðingar iðnaðaruppbyggingarinnar hafi náð öllum tökum á málflutningi Samfylkingarinnar.