132. löggjafarþing — 82. fundur,  10. mars 2006.

Framhald umræðu um frumvarp til vatnalaga.

[10:15]
Hlusta

Einar Oddur Kristjánsson (S):

Virðulegi forseti. Úrslit síðustu alþingiskosninga ættu að vera öllum ljós og kunnug. Ég get mjög vel skilið að þeim sem lenda í stjórnarandstöðu þyki það sárt og leiðinlegt. Ég hef fullan skilning á því. Mér mundi eflaust leiðast líka ef ég væri í stjórnarandstöðunni. Ég skil þetta því mætavel hvernig komið er núna.

Almennt er ég þeirrar skoðunar, virðulegi forseti, að því færri mál sem Alþingi samþykkir á hverju ári þeim mun betra. Frá mínum sjónarhóli sé ég ekki að neinn skaði sé skeður þó að við duddum í þessu fram yfir páska.