132. löggjafarþing — 82. fundur,  10. mars 2006.

Frumvarp um vatnatilskipun ESB.

[12:19]
Hlusta

Forseti (Birgir Ármannsson):

Af þessu tilefni vill forseti taka fram að áform eru uppi um að taka á dagskrá vatnalög að lokinni umræðu um fundarstjórn forseta. Ætlunin er að halda þeirri umræðu áfram fram eftir degi, en ekki eru áform um að eyðileggja árshátíð starfsmanna þó að fundur haldi hér áfram.