Breytingar í nýjum vatnalögum.
Frú forseti. Ég verð að játa það að ég skil ekki afstöðu stjórnarandstöðunnar í þessu máli. (Gripið fram í: Þú hefur heldur ekki verið viðstaddur þessa umræðu.) Ég hef hlustað nægilega vel til þess að botna lítið í því. Hér er á ferðinni eðlileg og sjálfsögð breyting á vatnalögum sem voru sett 1923 í takt við tímann, í takt við hæstaréttardóma sem virtustu lögfræðingar landsins hafa komið að og eru á einu máli um að hér sé fyrst og fremst um formbreytingu að ræða en ekki efnisbreytingu. (MÁ: Fyrst og fremst.) Stjórnarandstaðan finnur sér þann aðaltilgang í lífinu á Alþingi að koma í veg fyrir að þetta gerist, að koma í veg fyrir að réttkjörinn meiri hluti á Alþingi geti afgreitt þetta mál á sína ábyrgð. Ýmislegt hefur gerst hér á Alþingi í gegnum tíðina en mér finnst að aldrei hafi verið gengið svona langt.
Ég var að líta yfir þingskjölin. (ÖS: … Framsóknarflokkinn …) Ég sé enga breytingartillögu frá stjórnarandstöðunni, enga. (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Frú forseti. Hef ég orðið?
(Forseti (SP): Hæstv. forsætisráðherra er að tala í ræðustóli.)
Það er greinilegt að hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar líður afskaplega illa yfir þessu. Þeir geta ekki einu sinni unnt ræðumönnum þess að tala hér á Alþingi. (Gripið fram í.) Menn sem tala tímunum saman, þrjá og fjóra og fimm klukkutíma, hrópa hér úti í sal, geta ekki hamið sig. (ÖJ: Af hverju …?) Hvers konar ástand er þetta hjá hv. þingmönnum? (Gripið fram í: Hvers konar … er þetta?) Geta hv. þingmenn ekki unnt meiri hlutanum á Alþingi að bera ábyrgð á sínum málum? (Gripið fram í: Það er löngu komið rautt ljós.)