132. löggjafarþing — 83. fundur,  11. mars 2006.

Framhald umræðu um frumvarp til vatnalaga.

[12:01]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Eins og forseti hefur áður greint frá verður þingfundur hér í dag um það mál sem er á dagskrá. Þegar umræðu um fundarstjórn forseta lýkur og umræður hefjast um málið sjálft hyggst forseti eiga fund með formönnum þingflokka og ræða framvindu málsins.

Um þá ósk að haldinn verði fundur í iðnaðarnefnd vísar forseti til þeirra svara sem formaður nefndarinnar veitti áðan við þeirri ósk.