132. löggjafarþing — 84. fundur,  13. mars 2006.

Skortur á hágæsluþjónustu á barnaspítalanum.

[15:23]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þá ágætu umræðu sem hefur farið fram í þessum sal við mjög sérstakar aðstæður. Mér finnst hv. þingmenn hafa verið mjög yfirvegaðir í umræðunni og sýna málinu skilning og virðingu. Ég vil því sérstaklega þakka fyrir það. En það er þannig að Landspítali – háskólasjúkrahús vill hlúa vel að börnum og hefur gert það. Ég hef dregið fram að við erum með þar framúrskarandi þjónustu. Við skörum fram úr ef við miðum okkur við aðra og því má ekki gleyma. Landspítalinn hefur staðið sig mjög vel og barnaspítalinn hefur verið þar fremstur í flokki varðandi þjónustu við veik börn.

Hér hefur verið rætt um tilfallandi þjónustu og það er rétt að það þarf að skoða hvernig henni er best fyrir komið. Það er alveg ljóst að við munum gera það með Landspítalanum eins og með önnur verkefni sem efla heilbrigðisþjónustu okkar. Það er því alveg klárt mál að þetta verður til skoðunar.

Ég vil hins vegar benda á að Landspítalinn setti ekki þessa gjörgæslu, þessa hágæslu barna, á sinn lista fyrir yfirstandandi fjárlagaár. Hvað segir það okkur? Þeir sem sýsla með þessi mál dagsdaglega og eru að forgangsraða innan sjúkrahússins, sem er auðvitað gerð krafa til að nýti fé skattborgaranna sem best, settu ekki þessa beiðni á forgangslistann fyrir yfirstandandi fjárlagaár. En vissulega munum við skoða þessi mál í framhaldinu, það er algerlega ljóst.

Ég vil taka fram að lokum sem er ótengt mál en hv. þingmaður kaus að taka hér inn og varðar það að borgað sé fram fyrir biðraðir, þá er alveg ljóst að Framsóknarflokkurinn hefur það ekki á stefnuskrá sinni.