132. löggjafarþing — 84. fundur,  13. mars 2006.

Þingmenn bera af sér sakir.

[15:26]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs til að fá að bera af mér sakir. Tilefnið er ummæli hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, síðastliðinn laugardag þar sem hún bar mig persónulega þeim sökum, svo og aðra þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, að hafa falsað ummæli sín úr fjölmiðlum og notað við umræðu hér á Alþingi. Tilgreindi hæstv. ráðherra tiltekið dæmi um meintar falsanir.

Í umræðunni á Alþingi síðastliðinn laugardag stóð fullyrðing gegn fullyrðingu. Ég hef nú farið gaumgæfilega yfir öll frumgögn í þessu máli sem ég hef aflað með hjálp starfsmanna Alþingis og hefur komið í ljós, eins og ég reyndar var sannfærður um, að ásakanir hæstv. ráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, eru staðlausir stafir. Þessi gögn hafa nú verið lögð á borð allra alþingismanna. Hæstv. ráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, hlýtur að eiga það við sjálfa sig hvort hún biðst afsökunar á því að bera þingmenn röngum sökum en hitt er alveg ljóst að í ljósi þeirra gagna sem nú hefur verið aflað hlýtur hún að draga ummæli sín til baka.