Þingmenn bera af sér sakir.
Hæstv. forseti. Þeir eru vinnusamir hv. þingmenn Vinstri grænna og afrakstur helgarinnar er heil bók um mig og ég þakka kærlega fyrir það að mér skuli vera sýndur sá heiður. En ég verð hins vegar að hryggja hv. þingmann með því að það sem ég sagði á laugardaginn stendur. Það kemur fram í bókinni, þetta svar mitt að ég hafi sagt „já, það eru uppi áform um það,“ þegar ég er spurð um hvort það sé fyrsta skrefið í að einkavæða Landsvirkjun, vegna þess að ég hef hlýtt á þáttinn og ég segi bara alls ekki já. Það er málið og það var það sem ég bar upp á hv. þingmann að hann hefði falsað þessi ummæli mín um að ég hefði sagt já þegar ég var spurð að því hvort þarna sé fyrsta skref í einkavæðingu.
Þetta er það sem ég hef að segja við hv. þingmann. Svo á ég eftir að lesa þessa bók og fara yfir ýmislegt sem ég hef sagt um þessi mál. En það er þetta, ég gekk til hv. þingmanns þegar hann sagði þetta í fyrsta sinn í þinginu, sem hefur verið sagt oftar en einu sinni, af því að ég vildi sjá hvort hann væri með útskrift frá Fjölmiðlavaktinni og þá sá ég að það var ekki, heldur hafði hann sjálfur ritað þetta upp eða einhver á hans vegum og þá var þarna komið já. Þetta er það sem ég hef að segja við hv. þingmann.