132. löggjafarþing — 86. fundur,  15. mars 2006.

Vatnalög.

268. mál
[20:36]
Hlusta

Jónína Bjartmarz (F):

Frú forseti. Ég hef sett mér það markmið í upphafi ræðu minnar sem er fyrsta ræða mín í þessu máli, að hafa hana umfram allt stutta. Þetta er í fyrsta lagi, og svo í öðru lagi eingöngu málefnalega.

En það var þannig þegar 1. umr. um þetta mál fór fram hér á þingi að þá tóku, að mig minnir, eingöngu hv. þingmenn Vinstri grænna þátt í umræðunni. Hv. þingmaður Kristján L. Möller hristir höfuðið, og hann man þá betur en ég, frú forseti. En þeir sem höfðu hæst og voru mest áberandi í þeirri umræðu voru hv. þingmenn Vinstri grænna.

Vegna þess að ég las þessi vatnalög fyrir mörgum árum og miðað við stóru orðin sem menn tóku upp í sig gagnvart því frumvarpi sem lá frammi, þá snerti það í mér ákveðna viðkvæma strengi sem varð til þess að ég settist yfir frumvarpið og lúslas það. Ég tek það fram að sú sem hér stendur á ekki sæti í iðnaðarnefnd og ég hef því að öllu jöfnu ekkert verið að setja mig öðru fremur inn í mál sem heyra undir þá nefnd.

En eftir að ég var búin að lúslesa þetta frumvarp allt í gegn skildi ég nákvæmlega ekkert í þeim málflutningi þar sem Vinstri grænir hv. þingmenn voru í fararbroddi. En svo þegar ég leit aðeins til baka þá rifjaðist upp fyrir mér umfjöllun sem var í fjölmiðlum um ráðstefnu sem haldin var á vegum BSRB undir yfirskriftinni Vatn fyrir alla. (Gripið fram í: Eru það pólitísk samtök?) Þá fannst mér eins og allar götur síðan hafi verið undirbúin einhver andstaða við frumvarpið.

Þegar ég kynnti mér hverjir sátu þá ráðstefnu var alveg ljóst að fólk var þar að fjalla um margt á allt öðrum forsendum en við þekkjum í okkar heimshluta. Út frá allt öðrum raunveruleika en við þekkjum. Ég get líka bætt því við, frú forseti, að ég hefði vel getað skrifað undir yfirlýsinguna sem kom frá þessum fundi. Vegna þess að hún sneri að vatni sem auðlind í þeim heimshluta þar sem mikill vatnsskortur er. En hér er í áróðursskyni dregið upp og nefnt eitthvert Afríkuríki, eitt af fátækustu ríkjum jarðar, ég minni á að sum þeirra búa ekki einu sinni við rafmagn eins og Líbería, og höfðað til þess hvernig þeir hafa farið út úr einkavæðingu vatnsins. Ríki þar sem ekki er einu sinni stjórnskipulag. Hefur ekki stjórn, jafnvel ekki sinni rafmagn. Eitt af vanþróuðustu ríkjum heims. Þegar það er notað hér í áróðursskyni til að hræða fólk með því og gefa til kynna að við ætlum að einkavæða vatn með þessu frumvarpi og takmarka aðgang almennings að vatni, þá fannst mér málflutningurinn orðinn vægast sagt ómálefnalegur. En það er pólitíkin í þessu.

Þess vegna þegar hv. iðnaðarnefnd lauk starfi sínu þá settist ég jafnspennt yfir álit bæði meiri hluta iðnaðarnefndar og minni hluta iðnaðarnefndar. Ég verð að segja, frú forseti, að það sem segir í áliti minni hluta iðnaðarnefndar gaf engan veginn til kynna þær aðfinnslur sem þar voru við frumvarpið, ásamt því að þeir tóku undir breytingar meiri hlutans. Aðfinnslurnar voru ekki nokkur grundvöllur undir þá 30 klukkustunda umræðu sem hér hefur farið fram. Í þessu þingskjali er því ekki að finna efnislega stoð fyrir þeirri umræðu sem staðið hefur hér í meira en 30 klukkustundir, sem ég tek fram að til lengri tíma litið er lögskýringargagn.

Þannig að margt hefur komið mér á óvart í þessari umræðu. En svo þegar upp er staðið og búið er að semja um lyktir þessa máls og búið að semja um að skipuð verði ákveðin nefnd sem skoði vatn í víðara samhengi og síðan að fresta gildistökunni, þá stendur í rauninni eftir — ef ég gef mér að lögin haldi áfram að hafa gildi, ef því verður ekki breytt eftir næstu kosningar — hvers virði þessi umræða er hér sem lögskýringargagn inn í framtíðina. Þá skiptir ekki bara máli, og kannski síst máli þær löngu ræður sem hér hafa verið haldnar um allt milli himins og jarðar, upplestur úr bókum og ljóðum og bara nefnið þið það. Heldur skiptir máli fyrir þá sem styðja frumvarpið og munu greiða því atkvæði sitt hver afstaða þeirra var til málsins.

Þess vegna fannst mér ástæða til, þó að ég ætli ekki að draga umræðuna á langinn hér í kvöld, að gera grein fyrir afstöðu minni. Vegna þess að ég eins og aðrir hef setið undir því að ætla að einkavæða vatnið, að við viljum með þessu takmarka rétt almennings að vatni, svipta fólk aðgangi að vatni. Þá finnst mér rétt að gera grein fyrir því að stuðningur minn við þetta frumvarp byggir á að þetta hafi kannski löngu verið tímabær endurskoðun á vatnalögunum. Ekki síst í ljósi breyttra þjóðfélagshátta frá 1923. Nú er þessi leið farin að það eru ákveðin ákvæði sem verða áfram í vatnalögum og svo eru náttúrlega önnur ákvæði sem verður að finna framvegis í allt öðrum lögum, vegna þessarar miklu áherslu sem við leggjum orðið í umhverfisverndina. Þar með talið á vatn. En endurskoðunin er tímabær.

Svo hafa menn spurt hérna: Af hverju að vera að endurskoða þetta núna? Af hverju ekki að bíða? Þá hlýtur maður að spyrja á móti: Af hverju að draga það? Meginástæðan fyrir að maður spyr svoleiðis er sú, að það er engin efnisbreyting í frumvarpinu. Ég hef heyrt menn halda því á lofti í þessari umræðu þegar verið er að vísa til dóma Hæstaréttar og vísa til helstu fræðimanna okkar á sviði lögfræðinnar, að við séum að afsala okkur löggjafarvaldinu og fela það dómurum. En það er bara þannig að þegar er verið að vísa til þessara lögspekinga að Alþingi sjálft setti þessi lög á sínum tíma. Á túlkun laganna hefur síðan í nokkur skipti reynt frá 1923. Það er fullt samræmi í túlkun Hæstaréttar á þessum lögum. Auk þess sem fræðimenn eru allir sammála um að ákvæði eins og hafa verið með þessari jákvæðu skilgreiningu þýða fullur eignarréttur. Einkaeignarréttur að landi.

Svo eins og menn hafa sagt þá er aldrei hægt að telja upp tæmandi allar nýtingarheimildirnar. Þess vegna sögðu menn að í ljósi álita fræðimanna samhljóma frá 1923 um dóma Hæstaréttar um þessa túlkun, þá skilgreinum við það hinsegin. Við segjum að það sé einkaeignarréttur fasteignareiganda og segjum að með því sé ekkert verið að breyta inntaki eignarráða fasteignareiganda yfir vatni. Síðan segir, eins og segir í lögunum, að það sé fullur réttur nema það sem lög eða samningar og réttur annarra skerði. Í þessum lögum eru mörg ákvæði sem ganga á þennan fulla einkarétt vegna þarfa nágranna. Vegna þarfa samfélagsins til að tryggja að enginn verði án vatns.

Það er skilningur minn á þessu. Að þetta sé eingöngu formbreyting sem við erum að gera með þessu frumvarpi. Við breytum engu um eignarréttinn. Við breytum engu um aðgang almennings. Heldur erum við að uppfæra gömul lög sem þörf var að gera vegna breyttra þjóðfélagsaðstæðna, vegna meiri áherslu á náttúruvernd en við höfum haft áður. Þetta er mín afstaða.

Með því að halda þessari afstöðu minni hér á lofti er ég að lýsa því hver vilji þess fulltrúa löggjafarvaldsins sem hér stendur var. Þess vegna skiptir máli að stjórnarliðar í þessu máli lýsi vilja sínum á bak við þetta frumvarp. Við ætlum ekki að breyta neinu. Það stendur ekki til að breyta neinu. Annað er áróður. Annað er pólitískur áróður.

Frú forseti. Það getur verið að ég hafi gleymt einhverju, ég er ekki búin að halda þá löngu ræðu sem hér hefði mátt fylgja með. En eins og ég kom inn á í andsvari fyrr í þessari umræðu, þá er það svo einkennilegt hvað stjórnarandstaðan talar hér út og suður, ýmist fyrir þjóðnýtingu eða því að styrkja einkaréttinn. Hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir tók það sérstaklega fram í ræðu sinni fyrr í dag að lögin hefðu reynst okkur heilladrjúg. Gefum okkur að efnislega séu þau ekki að fela í sér neina breytingu. Þá er ljóst að menn vilja einhvern veginn fara út á annað spor. Þeir vilja breyta ríkjandi lögskipan á þessu sviði. Enda kom það hérna fram í ræðu hjá hv. þm. Ögmundi Jónassyni að Vinstri grænir vilja þjóðnýta vatnið.