Vatnalög.
Frú forseti. Ég sagði ekki í ræðu minni að með þessum lögum væri fyrst og fremst verið að styrkja náttúruvernd heldur sagði ég, vegna þess að lögin frá 1923 eru bara barn síns tíma, að nú fjölluðu lögin í rauninni um þrengra svið en þau gerðu 1923 og að við yrðum með þetta mál í fleiri en einum lagabálki vegna aukinnar áherslu sem við leggjum á náttúruvernd, svo ég haldi því til haga.
Hv. þingmaður sagði áðan að stjórnarandstaðan telji að í frumvarpinu felist ekki aðeins formbreyting heldur efnisbreyting. Ég tel að í því felist aðeins formbreyting og ekki bara að ég, heldur hafa allir fræðimenn frá 1923 sem hafa skrifað um þetta mál verið þeirrar skoðunar. Ég tel það m.a. vegna þess að þetta eru slíkir fræðimenn að ég hef hingað til (Gripið fram í: Ólafur Jóhannesson.) getað treyst þeim, Ólafur Jóhannesson, Þorgeir Örlygsson, Gaukur Jörundsson. (Forseti hringir.) Þeir eru meðal okkar virtustu fræðimanna á sviði eignarréttar.