132. löggjafarþing — 86. fundur,  15. mars 2006.

Vatnalög.

268. mál
[21:02]
Hlusta

Jónína Bjartmarz (F) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður spyr svo stórt. Ég efa að mér vinnist tími til að svara honum í andsvari, þótt það væri helmingi lengra. Ég veit heldur ekki hvert svarið er. En ég get upplýst hv. þm. Kristján L. Möller um að þetta er eitt af því sem er til umræðu innan stjórnarskrárnefndar.

Í stjórnarskrám sumra ríkja eru ákveðin umhverfisverndarákvæði. Ég hef heyrt eitt eða tvö ríki nefnd í þessari umræðu sem koma inn á vatn í stjórnarskrám sínum. Mig minnir að annað sé í Afríku. (Gripið fram í: Bólivía.) Annað ríkið er Bólivía. Við skulum hugsa okkur hvernig þjóðfélagið, uppbygging þess og allur strúktúr er öðruvísi í Bólivíu en hér og þar af leiðandi þörfin. En þetta er svolítið djúp, lögfræðileg spurning.

Ef við gerum ráð fyrir að lögin frá 1923 gildi áfram með því fyrirkomulagi sem þau kveða á um, hvernig ætti þá stjórnarskrárákvæðið að hljóða? Það er ekki um að ræða að taka sérstakt vatnsverndarákvæði upp í stjórnarskrána en hins vegar er talað um að taka umhverfisréttarákvæði upp í stjórnarskrána. En ég útiloka alls ekki, vegna þess að vatn hefur verið svo mikið til umræðu, að það verði tekið til skoðunar hjá stjórnarskrárnefnd með ýmsu öðru sem þar er á borðinu. Ég tala nú ekki um ef sérstök erindi varðandi málið koma til nefndarinnar. Þá verður sérstaklega fjallað um það.

En flokkur hv. þm. Kristjáns L. Möllers á fulltrúa þar inni. Við gerum ráð fyrir að annaðhvort þeir fulltrúar eða einhverjir aðrir beri málið upp og stjórnarskrárnefndin taki afstöðu til þess. En þetta er töluvert flókið líkt og yrði að túlka það ef tekin yrði upp sameign þjóðarinnar á öðrum auðlindum miðað við gildandi lög sem skapa fólki tiltekinn rétt.