132. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2006.

Þverpólitísk aðkoma að öryggismálum.

[15:14]
Hlusta

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

Frú forseti. Allt sem hv. þingmaður nefndi eru atriði sem þarf að ræða rækilega og það verður gert á næstu dögum og vikum. Það er líka ljóst að stjórnmálaflokkarnir þurfa að fara mjög rækilega yfir þessi mál á sínum vettvangi, fara yfir stefnu sína í öryggis- og varnarmálum og ég fagna því að stjórnmálaflokkar hafa þegar tekið skref í þá átt.

Það liggur fyrir að nokkur ágreiningur hefur verið um þau mál á undanförnum árum og ekki síst við flokk hv. þingmanns en það er mjög mikilvægt að hver og einn flokkur endurmeti stöðu sína í þessu samhengi í ljósi þeirra atburða sem nú virðast ætla að verða að veruleika.