132. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2006.

Skattalækkun og ný hjúkrunarheimili.

[15:37]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég árétta að vandinn er mikill. Vilji stjórnmálamanna til að leysa hann er mikill en við vitum að vandinn verður ekki leystur nema með fjármagni.

Vilji menn ekki leggja til þess fé stendur vandinn áfram óleystur. Ég bind vonir við að sú nefnd sem hæstv. ráðherra nefndi skili af sér tillögum sem að gagni mega koma hvað þetta varðar. Ég vek þó athygli á því, virðulegi forseti, að fyrir þinginu liggur fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra frá hv. þm. Ástu Möller þar sem ráðherra er spurður að því hvort hann hyggist taka upp viðræður við Sóltún um viðbyggingu fyrir þjónustu við aldraða sem þarfnast vistunar á hjúkrunarheimili.

Eðlilega getur hæstv. heilbrigðisráðherra ekki svarað þessari fyrirspurn nema vissa sé fyrir því og stuðningur í ríkisstjórninni að fjármagn fáist til verkefnisins.