Lax- og silungsveiði.
Virðulegi forseti. Þetta mál er vissulega mikið að vöxtum en það veldur mér ákveðnum vonbrigðum að ekki eru lagðar til frekari hömlur á laxveiðar í net eða hreinlega bann. Ég hefði haldið að hæstv. ráðherra væri lengra kominn með það mál og ég lýsi yfir undrun minni á því að hér séu ekki lagðar til frekari hömlur. Það má t.d. segja að laxveiði á stöng meira og minna á Suðurlandsundirlendinu öllu sé haldið í heljargreipum netaveiða en það er hægt að færa ítarleg og mörg rök fyrir því að setja verulegar hömlur á netaveiðina. Tekjur af hverjum netveiddum laxi eru t.d. ekki nema um 7% af heildarverðmæti stangveiðanna. Það má segja að stangveiðin nái sér ekki á strik út af þessu. Ég spyr því hæstv. landbúnaðarráðherra: Af hverju var ekki gengið mun lengra í þessa átt í þeim frumvarpsdrögum sem hér liggja fyrir?