Lax- og silungsveiði.
Hæstv. forseti. Sú umræða er mjög þekkt í kringum veiðiskapinn á síðustu árum að það beri með löggjöf að banna netaveiðar í straumvatni á Íslandi. Vissulega fór ég yfir það með færustu lögmönnum, þeim sem ég hef hér rætt um, og við þekkjum það að í sumum ám, t.d. Þjórsá sem er í sveit hv. þingmanns, og við getum nefnt fleiri vötn, að aldrei verður veitt öðruvísi en í net. Það mundi mörgum þykja það ankannalegt að banna netaveiðar. Samkvæmt öllum upplýsingum er hægt að semja um það við eigendur jarðanna að netin fari upp en ríkið yrði stórlega skaðabótaskylt, ekki bara í gegnum þau net sem á eftir að taka upp með samningum heldur öll þau net sem tekin hafa verið upp. Það mundi kalla á gríðarlegan bótarétt af hálfu ríkisins samkvæmt stjórnarskrá Íslands.