132. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2006.

Lax- og silungsveiði.

607. mál
[16:45]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Nei, það er ekki minn vilji. Hvort það eru mannréttindi að moka upp laxi eða ekki, við getum verið sammála um það, ég og hæstv. landbúnaðarráðherra, að svo er ekki.

En hvort um er að ræða fortakslaust bann, ég er ekki viss um að það sé lausnin, en hömlur sem verða til þess að veiðisvæðin skerðist ekki eru sú sátt sem ég held að væri hægt að ná í málinu.

Ég tek svo sannarlega undir það með hæstv. ráðherra að það er skynsamlegt að hlutaðeigandi fái frið til að semja og ná sáttum og þess vegna kallaði ég eftir því að þetta mál, svo ágætt sem það er að mörgu öðru leyti, kæmi ekki aftur inn í þingið á þessu vori, heldur yrði unnið betur og kæmi ekki fram fyrr en búið væri að leiða þessi mál til lykta. Það er vissulega fleinn í holdi hæstv. landbúnaðarráðherra að koma með frumvarp sem þetta inn í þingið og berjast fyrir því að fá það samþykkt hafi deilan um netaveiði og stangveiði ekki verið leidd til lykta.

Ég held að það sé mjög mikilvægt að um það mál náist varanlegur friður og að veiðiréttarhafar og aðrir hafi samið um það mál. Það þarf að gerast áður en ný lög um lax- og silungsveiði verða sett þar sem hægt er að leggja til ákvæði um þær hömlur sem duga til að skerða ekki veiðisvæði með þeim afleiðingum sem við þekkjum og eru nokkuð katastrófískar fyrir margar árnar, að margir telja. Laxinn gengur þar ekki upp í neinum mæli og árnar ná sér ekki á strik og skila landeigendum og bændum ekki þeim verðmætum sem um er að ræða. Ég held að við deilum ekki um það að lax veiddur á stöng er verðmætari og dýrmætari auðlind en lax veiddur í net.

Við þurfum að ná friði um málið, það er ekki spurning. Ég óska eftir því að hæstv. landbúnaðarráðherra dragi málið (Forseti hringir.) til baka og komi með það þegar það er tækt til afgreiðslu.