132. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2006.

Lax- og silungsveiði.

607. mál
[16:47]
Hlusta

landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þá heyrðum við það. Hv. þingmaður vill að netin fái að vera áfram í Þjórsá. Hann segir það hér hiklaust að hann vilji ekki banna það með löggjöf, eða setja þau lög að net skuli upp úr ánum. Svo við erum að því leyti sammála.

Eitt er ljóst, hæstv. forseti, að netaveiðibændur hafa búið við miklar hömlur. Ég hef bæði veitt í net og á stöng. Ég minnist þess þegar ég var netaveiðimaður hjá tengdaföður mínum á fallegum kvöldum við Hvítá, þá fengum við bara að veiða frá þriðjudagsmorgni fram á föstudagskvöld. Laugardag, sunnudag og mánudag var hlé í ánni til að hleypa fiskinum áfram upp og setja hömlur á netaveiðimenn. Þannig að þeir búa við hömlur.

En ég hygg að við séum nokkuð sammála, eftir að ég hef rakið garnirnar úr hv. þingmanni, um að það beri að fara að í þessu efni í samningum. Þeir samningar standa yfir. Það eru að hluta til þau (Forseti hringir.) mannréttindi sem ég er að tala um.