Lax- og silungsveiði.
Virðulegi forseti. Ég hlustaði á ræðu hv. þm. Björgvins G. Sigurðssonar — ég vona að hann hafi ekki farið svo langt að hann heyri ekki í mér — með einni undantekningu þó, ég þurfti aðeins að hlaupa í símann. En mig langaði til að spyrja hann einnar spurningar. Það má vera að hann hafi komið inn á það í ræðu sinni.
Hann talaði um að það ætti að hætta netaveiðum á laxi í straumvötnum. Þá langar mig að spyrja hann, því ég býst við að hann sé hér sem talsmaður þingflokks Samfylkingarinnar, hvernig hann sjái fyrir sér útfærsluna á því. Hverjir eiga þá að greiða kostnaðinn af því? Hvort hann sjái þá fyrir sér að sá kostnaður falli á ríkissjóð eða hvort einhverjir aðrir eigi að greiða þann kostnað og þá hugsanlega hverjir?