132. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2006.

Lax- og silungsveiði.

607. mál
[16:56]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé engum blöðum um það að fletta að sá kostnaður mundi falla á íslenska ríkið. Hér er um að ræða þess háttar mál að það er eðlilegt að íslenska ríkið taki á sig alla vega stóran hluta af þeim kostnaði.

Það má vel vera að samningsleiðin gæti orðið til þess að veiðiréttarhafar annars staðar á svæðinu næðu samningum við þá veiðiréttarhafa sem stunda netaveiðarnar um að kaupa upp réttinn eða eitthvað slíkt. Þá þyrfti hið opinbera ekki að koma að. En verði gengið öðruvísi í þessi mál finnst mér engin spurning að hið opinbera beri af því kostnaðinn af því hér er um að ræða gamalt deilumál sem hefur aldrei verið leitt til lykta og mjög mikilvægt fyrir Íslendinga alla að málið verði klárað með þeim rétti.

Nú eru til staðar sérstök lög um hefð og í 1. gr. þeirra segir, með leyfi forseta:

„Hefð má vinna á hverjum hlut, jafnt fasteign sem lausafé, er getur verið eign einstakra manna, án tillits til þess, hvort hann var áður einstaks manns eign eða opinber eign.“

Þannig að það er engin spurning að netaveiðarnar hafa fyrir löngu skapað hefðarrétt svo það þurfa að koma til einhvers konar sanngjarnar bætur o.s.frv.

En þetta mál verður að leysa og þessi löggjöf um lax- og silungsveiði verður aldrei það sem henni er ætlað að verða, verður aldrei sú grundvallarlöggjöf sem hún á að verða, þegar hún loksins fer kannski í gegnum þingið, nema þetta hafi verið leitt til lykta einnig. Það er mjög mikilvægt. Þess vegna hef ég fært það í tal sérstaklega og fært fyrir því rök hér við hæstv. ráðherra og þingheim að það verði að leita leiða til að setja verulegar hömlur á laxveiðinet, þó svo að ekki þurfi endilega að vera um (Forseti hringir.) fortakslaust bann að ræða — og helst ekki af því að bönn eru alltaf af hinu (Forseti hringir.) illa nema þau séu …