Lax- og silungsveiði.
Frú forseti. Eins og ég kom inn á í ræðu minni hér áðan hafa Stangveiðifélag Reykjavíkur, Orri Vigfússon og fleiri aðilar í áranna rás náð samningum við bændur með greiðslum fyrir upptöku neta. Á stundum hafa þeir samningar verið með þeim hætti að greitt er fyrir varanlega upptöku, samningar eru þannig að það er ekki hægt að leggja netin aftur niður, þeir eru þess eðlis. Aðrir samningar, eins og til að mynda í Borgarfirði, eru oft eingöngu til eins árs, stundum til fimm ára o.s.frv. Það hriktir því oft í stoðunum þegar kemur að endurskoðun samninga milli veiðifélaga og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu. Þessi ógn vofir alltaf yfir á þeim stöðum þar sem samningarnir eru mjög stuttir, til eins eða fimm ára.
Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum komin hér fram á 21. öldina og getum ekki sætt okkur lengur við blóðuga magnveiði. (Forseti hringir.) Til þess að koma þessu vandamáli frá um ókomna tíð verður einfaldlega að breyta þessum lögum. Það er mín skoðun.