Lax- og silungsveiði.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson er mikill vinur einkaframtaksins og mikill gæslumaður eignarréttarins. Hann er mikill áhugamaður um að lækka ríkisútgjöld og mér finnst því eðlilegt, virðulegi forseti, að koma hér upp í ræðustól og spyrja hann einnar pólitískrar spurningar. Hann lagði á það áherslu í máli sínu að það væri í raun og veru pólitískt úrlausnarefni hvernig staðið skyldi að þessum málum.
Mig langar að spyrja hann: Hver á að borga reikninginn? Hver á að borga reikninginn ef sú leið yrði farin að þessi nýtingarréttur yrði tekinn af bændum og greiða yrði skaðabætur? Ætti ríkissjóður að greiða reikninginn eða ættu stangveiðimenn og ferðaþjónustuaðilar, sem hugsanlega mundu hagnast á slíkum breytingum, að greiða reikninginn?
Þetta er í raun og veru grundvallarspurning sem mér finnst að þurfi að hafa forgang fram yfir þá spurningu hver upphæðin síðan yrði. Ég tel að hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson hljóti að hafa svör við þessu á reiðum höndum. Hann hefur greinilega kynnt sér þessa hluti mjög vel og ætti því að geta svarað þessari litlu og einföldu spurningu minni skýrt og skorinort.