132. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2006.

Lax- og silungsveiði.

607. mál
[20:40]
Hlusta

Valdimar L. Friðriksson (Sf):

Frú forseti. Við ræðum frumvarp til laga um lax- og silungsveiði. Eins og komið hefur fram er því ætlað að leysa af hólmi lög um sama efni frá árinu 1970 og samhliða eru lögð fram frumvörp um eldi vatnafiska, fisksjúkdóma, Veiðimálastofnun og fiskrækt. Það hefði sennilega verið æskilegra að leggja líka fram frumvarp sérstaklega um Fiskræktarsjóð.

Mest hefur verið rætt um 27. gr. lagafrumvarpsins þar sem segir, með leyfi forseta:

„Í straumvatni má við veiðar aðeins nota færi, stöng, lagnet og króknet.“

Ég held að það hafi ekki komið neinum á óvart að þetta skyldi verða aðalumræðuefni í dag varðandi þetta lagafrumvarp, þ.e. hvort áfram eigi að leyfa netaveiði í straumvatni eða í ám. Samkvæmt lagafrumvarpinu verður það leyft áfram. Það kom fram í andsvörum fyrr í dag að breytingartillaga muni koma frá stjórnarþingmanni í landbúnaðarnefnd þess efnis að banna netaveiði í straumvatni.

Það er nauðsynlegt, frú forseti, að skoða alla kosti og galla þeirra breytinga og í því sambandi brýnt að kalla til fulltrúa þeirra hagsmunaaðila sem þar koma að máli og þá sérstaklega forsvarsmenn Landssambands stangveiðifélaga. Það kom fram í máli hæstv. landbúnaðarráðherra að þau samtök hefðu haft greiðan aðgang að frumvarpsdrögunum á netinu en ég held því enn fram að eðlilegra hefði verið að kalla fulltrúa þeirra sérstaklega til, þ.e hafa þau með í ráðum við samningu frumvarpsins.

Aðalatriðið er að þessi stóru hagsmunasamtök, sem ég nefndi áðan, fái greiðan aðgang að landbúnaðarnefnd til að rökræða sitt sjónarmið þó ekki væri nema til að tryggja að öll sjónarmið komi fram til að reyna að ná einhverri lendingu í þessu máli og skapa frið. Það hefur verið nefnt margoft að menn hafa hreinlega staðið í deilum varðandi netaveiði í straumvatni og svo sannarlega mælir margt með því að net verði tekin upp. Ég tel að þingmenn ættu að lesa vel og vandlega greinargerð sem Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands gerði í mars 2004 og var komið nokkuð vel inn á í ræðu fyrr í dag en greinargerðin ber heitið Efnahagslegur ávinningur af aukinni fiskgengd á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár.

Í 1. gr. frumvarpsins, um markmið laganna, er m.a. talað um hagkvæmni. Margir hafa bent á að meiri hagkvæmni væri fólgin í því að netaveiðar yrðu hreinlega bannaðar í straumvatni. Eðlilega eru þau stangveiðifélög sem koma að ám lítt spennt fyrir því að rækta sérstaklega upp t.d. efri hluta áa, þar sem möguleikar eru til slíks, ef net verða síðan lögð neðar og fiskurinn úr fiskræktinni veiddur þar. Það hefur komið fram í máli manna í dag og kemur fram í þessari greinargerð að mun hærra verð fæst fyrir laxinn ef hann er veiddur á stöng heldur en ef hann er veiddur í net. Stangveiðinni fylgir að auki atvinnuskapandi starfsemi, fleiri veiðihús, veiðimenn, leiðsögumenn og ýmislegt fleira.

Það er alla vega á hreinu, frú forseti, að það þarf að skoða þetta mál gaumgæfilega. Eins og bent var á áðan er það röksemd fyrir því að þrengja að netaveiði eða banna hana jafnvel hvernig ástand stórlaxastofnanna er hérlendis sem að miklu leyti virðast enda líf sitt í netum.

Minnst hefur verið á að hægt sé að fara þá leið, eins og gert var í Borgarfirði, að gera samninga við netabændur eða landeigendur og menn hafa líka velt fyrir sér í dag hvort þeir samningar haldi. Það hefur borist okkur til eyrna að þessir samningar eru til misjafnlega langs tíma og jafnvel allt niður í eitt ár. Menn vita þá að sjálfsögðu ekki hvað verður næst. Í því tilfelli er ekki vænlegt, eins og menn hafa velt fyrir sér, t.d. á Suðurlandi, að fara út í mikla fiskrækt til að auka laxagengd í ánum til að bæta í stangveiði. Það er ekki mikill hvati til að fara út í slíkar aðgerðir ef menn eru ekki öruggir með að hægt sé að endurnýja gerða samninga eftir eitt ár eða fimm ár. Ég ítreka að í umræðum um þetta frumvarp þarf að fara mjög vandlega yfir þessa hluti í sambandi við netaveiðina.