132. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2006.

Lax- og silungsveiði.

607. mál
[20:53]
Hlusta

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegi forseti. Ég sé mig knúinn til að koma upp í ræðustól og notfæra mér rétt minn til að halda seinni ræðu mína vegna þess að mig langar hreinlega til að reifa nokkrar staðreyndir varðandi netaveiði sem mér finnst alls ekki hafa komið nægilega vel fram í dag, staðreyndir úr skýrslum um niðurstöður okkar færustu vísindamanna varðandi þessa hluti.

Ég vil leyfa mér að benda á frumvarpið og greinargerð sem fylgir því á bls. 91 þar sem stendur, með leyfi forseta:

„Eins og fram hefur komið hér á undan hefur netalögnum í ám og vötnum fækkað á síðustu árum og í kjölfarið hefur netaveiddum löxum fækkað. Árið 1978 veiddust til að mynda um 26.000 laxar í net, en árið 2003 aðeins um 7.500 laxar. Langstærstur hluti laxins veiðist í net sem lögð eru í Hvítá, Ölfusá og Þjórsá á Suðurlandi og samsvaraði netaveiðin í þessum ám um 88% heildarveiði ársins 2003“ — þ.e. heildarveiði netaveiddra laxa hér á Íslandi. Við erum ekki að tala um mjög svo marga laxa þannig lagað séð. Þetta er aðallega á þessu eina svæði á landinu.

„Helstu ástæðu þess að netaveiði á laxi hefur svo mjög dregist saman, einkum þó á laxi, má rekja til þeirra auknu vinsælda sem stangveiði nýtur sem heilsusamleg og gefandi afþreying. Nú má tvímælalaust telja stangveiði meðal þeirra íþrótta sem hvað flestir landsmenn stunda. Þessi aukni áhugi hefur brotist fram á sama tíma og verð á laxi til manneldis hefur lækkað vegna aukinnar samkeppni frá eldisfiski. Fyrir vikið hefur netaveiði dregist saman en stangveiði aukist, enda hefur það almennt sýnt sig að arður af veiði eykst ef stangveiði er aukin á kostnað netaveiði.

Frá árinu 1991 hafa t.d. eigendur stangveiðiréttinda á vatnasvæði Hvítár í Borgarfirði keypt upp rétt veiðimanna til að leggja net. Þetta hefur minnkað sókn og veiði á vatnasvæðinu og í kjölfarið hefur stangveiði í hliðarám aukist um 28–35%. Talið er að nú veiðist á stöng um 39–52% af þeim laxi sem áður var veiddur í net.“

Hér stendur sem sagt að reynslan frá Hvítá í Borgarfirði sýni að það er einungis hluti af þeim laxi sem veiddist áður í net sem mun veiðast á stöng ef netaveiðum verður hætt. Við getum því ekki komið hér og sagt: Það er verið að veiða í net um 4.000 laxa á ári í Þjórsá, Ölfusá og Hvítá, 4.000–5.000 laxa á ári kannski, og ef við hættum netaveiðum munu allir þessir laxar sjálfkrafa veiðast á stöng og verðmætaaukningin mun því verða alveg stórkostleg við það eitt að hætta netaveiðunum. Þetta er ekki svona einfalt og þetta kemur líka mjög vel fram í þeirri skýrslu sem Magnús Jóhannsson og Sigurður Guðjónsson, tveir fiskifræðingar Veiðimálastofnunar, unnu og sú skýrsla kom út, eins og ég sagði áðan, árið 2004. Þeir leiða líkur að því að sennilega verði þetta hlutfall á umræddu vatnasvæði, þ.e. Ölfusá og Hvítá, mun lægra en í Hvítá í Borgarfirði, m.a. vegna þess að hluti af laxinum í Ölfusá og Hvítá gengur aldrei í bergvatn en hrygnir í jökulvatninu.

Mér finnst að menn hafi með málflutningi sínum í dag gert allt of mikið úr þessu, lagt allt of mikla áherslu á þetta og séu í raun og veru að píska upp einhvers konar stemmningu í þessu máli án þess að það sé svo mikil innstæða fyrir því sem þeir eru að halda fram. Þó ég sé sjálfur þeirrar skoðunar að það sé á margan hátt rétt að leggja af þessar netaveiðar þá get ég hreinlega ekki tekið undir það að við eigum að setja lög sem taka þennan rétt af bændum. Við getum ekki gert það og ég er á móti því.

Komum síðan aðeins að fiskifræðilega þættinum. Ég er með fréttatilkynningu frá Veiðimálastofnun sem kom út 4. október sl. Þar stendur orðrétt:

„Fyrstu bráðabirgðatölur benda til þess að stangveiðin hafi verið um 53.500 laxar sem er um 7.600 löxum meiri veiði en var á árunum 2004 og 52,4% meiri en meðalveiði áranna 1974–2004. Stangveiði á laxi sumarið 2005 er sú mesta sem skráð hefur verið á stangveiði í íslenskum ám en fyrra met var 1978 þegar 52.679 laxar veiddust.“

Virðulegi forseti. Laxveiðin í fyrrasumar var með öðrum orðum ein sú besta í sögunni. Mér hafa ekki borist fréttir af því að einhver sérstakur veiðibrestur hafi verið á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár. Ég hef ekki séð fréttir um það. Hins vegar er hér mjög eindregin fréttatilkynning frá Veiðimálastofnun um það að laxastofnanir á Íslandi séu hreinlega í stórsókn. Ég fæ ekki séð og get ekki tekið undir þau rök sem hafa verið notuð hér í dag að þessi tiltekna netaveiði á örfáum bæjum á Suðurlandi eigi að skipta einhverjum sköpum um vöxt og viðgang laxastofna hér á Íslandi. Ég get ómögulega komið auga á það. En það hljóta að vera einhverjir aðrir sem hafa séð það. Slík er ofuráherslan sem er lögð á að hér verði lögbann sett á netaveiði með ansi skrýtnum röksemdum og ansi óljósum hugmyndum um það hverjar afleiðingarnar yrðu.

Ég hygg að slíkt mundi skapa ríkinu stórkostlega skaðabótaskyldu, ekki bara á þessu svæði, þ.e. á svæði Ölfusár og Hvítár, heldur allt í kringum landið. Á þeim jörðum þar sem netaveiði hefur einhvern tíma verið stunduð munu menn vísa til þess að um sé að ræða forn réttindi sem hafi tilheyrt þessum jörðum og fyrst búið sé að setja á lögbann sem eigi að vara í einhvern ótiltekinn tíma, jafnvel um aldur og ævi, hljóti að verða að koma bætur fyrir og ríkisvaldið eigi að greiða þær bætur. Menn munu vitna í ákvæði stjórnarskrárinnar og annað þar fram eftir götunum og þetta mun leiða til þess að skapast mun mjög víðtæk skaðabótaskylda en ávinningurinn er óljós.

Ég veit ekki betur en þegar sé búið að leigja þennan rétt af bændum mjög víða, eins og til að mynda í Hvítá í Borgarfirði, til einhvers tíma. Ég hef svo sem ekki kynnt mér það í smáatriðum hvernig þeir samningar líta út en þar hafa menn a.m.k. hætt þessum veiðum. Þessar veiðar eru ekki mjög umfangsmiklar heldur á Suðurlandi, skila ekki það mörgum löxum, og þó að þessum veiðum yrði hætt er alls ekki sjálfgefið að þeir skili sér í stangveiðina. Vísindamenn hafa fært efnisleg rök fyrir því í sínum skýrslum að einungis hluti af þeim löxum sem áður veiddust í net mundu sjálfkrafa bíta á króka stangveiðimanna. Þannig er það.

Þegar við veltum svona hlutum fyrir okkur og tökum ákvarðanir hljótum við að verða að skoða og meta ískalt þau gögn sem við höfum fyrir framan okkur, þær rannsóknarniðurstöður sem liggja fyrir. Ég hef sjálfur verið mjög upptekinn af því að efla stangveiði hér á landi en ég er ekki reiðubúinn að efla þessa vinsælu tómstundaiðju með því að ganga freklega á rétt bænda. Ég er ekki reiðubúinn að gera það þannig að það muni leiða til þess að ég, sem einn af 63 þingmönnum sem fara með löggjafarvald í þessu landi, baki þar með ríkinu og öllum skattborgurum mikla skaðabótaskyldu þar sem stórar miklar fjárhæðir eru í húfi, allt fyrir mjög svo óljósan ávinning.

Við eigum að sjálfsögðu að nýta þessa fiskstofna og við getum eflt stangveiði á Íslandi en ég held að ef við ætlum að gera það sé miklu vænlegra að líta til annarra þátta en þess að ætla að setja hér í lög einhvern texta sem við vitum ekki hvert mun leiða okkur fyrir ávinning sem ég tel óljósan. Þegar öll kurl eru komin til grafar og við skoðum alla þætti málsins og þau efnislegu rök sem liggja fyrir frá vísindamönnum til að mynda, get ég ekki séð að við finnum næga réttlætingu fyrir því að gera þetta.

Ég mun þar af leiðandi í starfi mínu í landbúnaðarnefnd mæla gegn því að hugmyndir um þennan tiltekna lagatexta varðandi altækt bann á netaveiðum á laxi í straumvatni nái fram að ganga og ég veit að svo er um aðra fulltrúa sem eiga sæti í landbúnaðarnefnd. Ég veit að fulltrúar stjórnarliðsins eru þar á meðal. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa talað fyrir því að setja þetta bann á, kemur úr hörðustu átt, en þegar upp er staðið hygg ég að þeir eigi sér ekki marga skoðanabræður, ekki einu sinni í sínum eigin þingflokki.