132. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2006.

Varnir gegn fisksjúkdómum.

596. mál
[21:23]
Hlusta

landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hef hlýtt á erkibiskups boðskap og met hann mikils og við erum samherjar í því að vilja veg Hólaskóla sem mestan (Gripið fram í.) og treystum þeirri stofnun afskaplega vel og Landbúnaðarháskólanum reyndar líka. Ég mun fara yfir þessa hugmynd og ræða hana í mínu ráðuneyti og ég veit að formaður landbúnaðarnefndar mun skoða þetta í nefndinni.