Fiskrækt.
Virðulegi forseti. Aðeins örstutt. Ég tek undir það, ég held að það sé á margan hátt mjög skynsamlegt og til fyrirmyndar að málum sé hagað með þessum hætti, að það sé þá einmitt einhvers konar nefnd eða ráð þar sem saman koma hagsmunaaðilar úr hinum ýmsu áttum, sérfræðingar og aðrir sem gætu haldið utan um einmitt framkvæmd þessara laga og fylgst með því hvort þar á séu einhverjir annmarkar, hvort eitthvað megi hugsanlega betur fara og þá hvort það yrði hugsanleg ástæða til þess að lögunum yrði breytt að einhverju leyti og þau lagfærð. Þetta er til fyrirmyndar, og þetta er nýmæli segir hæstv. ráðherra. Mér finnst að aðrir ráðherrar mættu fylgja þessu fordæmi í sínum störfum.