132. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2006.

Fiskrækt.

613. mál
[22:31]
Hlusta

landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að það sé nokkuð skýrt að barrinn og lúðan heyra undir nytjastofna sjávar og eru undir þeirri löggjöf. (Gripið fram í: Hvað með hornsíli sem lifa í …?) Nú skal ég ekkert segja um það. En ég held að þetta sé samt sem áður þannig að inn í þetta getur auðvitað komið fleira en lax. Þetta er nokkuð opið hvað fiskræktina varðar þannig að fleira getur komið til í þessu en lax.

En undir landbúnaðarráðherra heyra sem sé fiskar og þau dýr sem lifa í ferskvatni.