132. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2006.

Fiskrækt.

613. mál
[22:32]
Hlusta

Anna Kristín Gunnarsdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Í þessu frumvarpi, frumvarpinu sjálfu, efnisgreinunum, er aðeins talað um laxfiska, þ.e. silung, lax, urriða, bleikju og annað sem þar undir fellur. Er ekkert nema gott um það að segja.

Mér finnst þetta í rauninni ágætisfrumvarp að undanskildu því sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson benti á áðan, að hér er ekki talað um Fiskræktarsjóð og þar með ekki bent á leiðir til að styðja við fiskræktina. Ég lýsi líka sérstakri ánægju með þann kafla sem fjallar um fiskræktaráætlanir.

Hins vegar vil ég líka lýsa þeirri skoðun minni að ég teldi eðlilegt að það fiskeldi sem fer fram á landi heyrði undir landbúnaðarráðherra, en skilgreindist ekki af því hvers konar vatni alið er í, hvort það er ferskvatn (Forseti hringir.) eða sjór.