Staða efnahagsmála.
Virðulegur forseti. Ég hlýt að lýsa yfir vonbrigðum mínum með þau svör sem forsætisráðherra gaf hér áðan við þeim fjórum spurningum sem ég beindi til hans. Þær voru í sjálfu sér sáraeinfaldar, þær voru einfaldlega um það hvernig forsætisráðherra teldi rétt að bregðast við þeirri gagnrýni sem kemur fram hjá matsfyrirtækjunum sem eru að meta lánshæfi ríkissjóðs. Þetta voru ekki mínar persónulegu athugasemdir, þetta voru athugasemdir sem koma fram bæði hjá Standard & Poor´s og hjá Fitch um það sem þessi fyrirtækja telja að betur megi fara í íslenska hagkerfinu. Þessi fyrirtæki benda á þá váboða sem hér eru. Það er skuldasöfnunin, viðskiptahallinn, álagið á peningamálastjórnunina, of lítil upplýsingagjöf og það eru of miklar væntingar vegna þess að stjórnvöld kynda undir þeim með stöðugum umræðum um virkjanir og stóriðju.
Forsætisráðherra kemur hér upp og segir: Ríkisstjórnin er ekki að skapa þessar væntingar. Hver er að skapa þær ef ekki þessi ríkisstjórn? Það er eins og hún sé andsetin þegar kemur að virkjunum og stóriðjumálum og sjái engar aðrar lausnir í efnahagsmálum, að hún þurfi að koma og færa fólkinu í byggðum landsins einhver atvinnutækifæri, að það sé enginn þess umkominn að skapa atvinnu. Ef ríkisstjórnin sinnti því hlutverki sínu og væri þess umkomin að skapa hér þá umgjörð í efnahagsmálunum að fyrirtækin gætu búið við sæmilegan stöðugleika gæti auðvitað ýmislegt orðið til í efnahagslífinu og atvinnulífinu án þess að ríkisstjórnin kæmi og færði mönnum virkjanir eða stóriðju á silfurfati.
Virðulegur forseti. Forsætisráðherra kom hér upp og sagði að við værum að mála mynd sem segði að allt væri í kaldakoli. Þetta er rangt, það var engin slík mynd máluð hér. Það var einfaldlega spurt hvað menn ætluðu að gera með þær athugasemdir sem koma fram hjá þessum matsfyrirtækjum. (Forseti hringir.) Og svörin voru engin vegna þess að ríkisstjórnin skellir við skollaeyrum.