Þjóðskrá og almannaskráning.
Virðulegi forseti. Bara stutt athugasemd vegna ummæla hæstv. forsætisráðherra um Hagstofuna, hann taldi að þar ætti að gera ákveðnar breytingar. Mig langaði bara til að koma hér upp enn og aftur og ræða um það sem ég talaði um hér áðan í fyrra andsvari mínu, þá möguleika og tækifæri sem við höfum í því að flytja eitthvað af þessum stofnunum út á land.
Ég hef til að mynda talað um það á opinberum vettvangi að Hagstofan sé alveg ágætisstofnun til að fara upp í næsta flutningabíl með ákvörðunarstað einhvers staðar fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Ég hef t.d. nefnt Vestmannaeyjar í því sambandi. Hún gæti sómt sér ágætlega þar og skapað góð og örugg störf.
Virðulegi forseti. Mig langar til vekja athygli á nokkuð áhugaverðri skýrslu sem kom út í Noregi fyrir ekki mjög svo löngu síðan sem fjallar einmitt um reynslu Norðmanna af því að flytja atvinnustarfsemi út á landsbyggðina. Nú veit ég að hæstv. forsætisráðherra er ágætis norskumaður og vil ég því nota tækifærið til að vekja athygli hans á þessari skýrslu, hún finnst á netinu. Aðstoðarmaður hans var hér áðan og hann getur fundið hana fyrir hann en skýrslan heitir „Effekter av utlokalisering av statlige arbeidsplasser“ og er útgefin af rannsóknarstofnuninni Rogalandsforskning. Þetta er ágætisskýrsla sem greinir mjög vel frá því hver reynsla frænda okkar í Noregi hefur verið af því að reka svona pólitík. Þeir hafa gert þetta núna um nokkurra áratugaskeið og flutt fjölmargar stofnanir frá Óslóarsvæðinu út á land, ekki síst stofnanir sem sjá um ýmiss konar skráningu en stofnanir þar sem unnið er í fjarvinnslu henta vel í þessu sambandi. Reynsla frænda okkar sýnir einmitt að ef vilji er fyrir hendi til að gera þetta þá er það mjög öflug byggðaaðgerð sem styrkir þessa staði og ekki síst til hagsbóta fyrir konur, en eins og við vitum eiga konur oft í erfiðleikum með að finna vinnu við sitt hæfi úti á landi.