132. löggjafarþing — 91. fundur,  22. mars 2006.

Sjúkrahústengd heimaþjónusta fyrir aldraða.

484. mál
[13:30]
Hlusta

Jón Kr. Óskarsson (Sf):

Frú forseti. Heimahjúkrun á að vera sjö daga vikunnar allan sólarhringinn. Öldrunarmál eru fjölskyldumál. Að mínu mati og margra annarra eiga öldrunarmál í heild sinni að flytjast til sveitarfélaga. Þar verður betri nærþjónusta og hagkvæmari.