132. löggjafarþing — 91. fundur,  22. mars 2006.

Áfengisráðgjafar.

535. mál
[13:46]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Frú forseti. Þetta er merkileg fyrirspurn og svo sannarlega umræðunnar virði. Það er engum blöðum um það að fletta að áfengisneysla hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum, sérstaklega á síðustu 10 árum, og er örugglega eitt stærsta vandamál samfélagsins að mörgu leyti. En það er sátt um að hér sé um löglegt fíkniefni að ræða, sem beri að vera sem slíkt, og því þurfi fyrst og fremst að leita tvenns konar úrræða, annars vegar forvarna og hins vegar meðferðarúrræða. Ég held að styrkja verði hvort fyrir sig, að auka forvarnir og efla meðferðarúrræðin sérstaklega.

Hvað varðar áfengisráðgjafana sem gegna þarna lykilhlutverki byggja þeir oft fyrst og fremst á eigin reynslu, sinni eigin lífsreynslu, en þurfa samt að vera starfi sínu vaxnir. Ég held að það sé varasamt að löggilda starfsheitið en það er sjálfsagt að skoða málið og finna farveginn þannig að tryggja megi (Forseti hringir.) þessu fólki lágmarksfræðslu og upplýsingar.