132. löggjafarþing — 91. fundur,  22. mars 2006.

Eftirlit með staðsetningu sjúkraflugvéla.

544. mál
[14:01]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Frú forseti. Einkum tvennt, annars vegar held ég í sambandi við sjúkraflugið að taka eigi upp hertari refsiákvæði standi sá sem sjúkrasamninginn gerir, eða flugfélagið, ekki við samninginn. Ég held að það verði að herða ákvæðin til að tryggja þetta enn þá betur. Þau eru ekki nógu hörð eins og kom fram í máli hæstv. heilbrigðisráðherra.

Hitt, af því að það blandaðist í umræðuna held ég að það sé öldungis fráleitt að halda verðmætasta byggingarlandi Reykjavíkur og þar með miðborginni allri í einhvers konar heljargreipum út af þessu. Ég held að það verði að finna aðrar leiðir til að koma til móts við sjúkraflugið og heilbrigðisþjónustuna sem er verið að byggja upp við Hringbrautina en þær að öll miðborg Reykjavíkur sé í einhvers konar greipum þess máls, og það verðmæta land sem er í Vatnsmýrinni verði ekki losað einungis út af því. Það þurfa að vera miklu sterkari röksemdir fyrir því. Það þarf að losa Vatnsmýrina við Reykjavíkurflugvöllinn en finna aðrar leiðir til að koma til móts við sjúkraflugið og þær þarfir sem þar eru gerðar til nálægðar (Forseti hringir.) við heilbrigðisþjónustuna.