Hreyfing sem valkostur í heilbrigðisþjónustu.
Frú forseti. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra heilbrigðismála út í hreyfingu sem valkost í heilbrigðisþjónustu. Ég hef ítrekað lagt fram þingmál ásamt fimm öðrum hv. þingmönnum um að farið verði að undirbúa það að hreyfing geti orðið valkostur í heilbrigðisþjónustu, þá sem lækning eða í fyrirbyggjandi tilgangi þannig að læknar geti vísað á hreyfingu og leiðbeiningar um mataræði sem meðferð við sjúkdómum á sama hátt og vísað er á lyf eða læknisaðgerðir. Til að þetta geti orðið þarf að fara í allnokkra undirbúningsvinnu og vísa ég til Norðurlandanna sem hafa tekið upp þennan valkost í heilbrigðisþjónustunni. Hann hefur gefist mjög vel, bæði hefur hann verið hagkvæmari og er áhættuminni en allt inngrip. Þetta ætti líka að geta komið til móts við aukinn lyfjakostnað þar sem menn mundu þá takast á við kvilla sína og sjúkdóma af eigin atorku í stað þess að fara á lyf eða í gegnum læknisaðgerðir.
Sem fylgiskjal með því þingmáli sem ég vísaði í og hef flutt ítrekað er verkefni sem nemendur í verkefnisstjórnun og leiðtogaþjálfun við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands unnu á síðasta ári. Það heitir Hreyfiseðill – ávísun á hreyfingu. Þar hafa þau unnið áfram þessa hugmynd og sett hana upp sem tilraunaverkefni. Ég hef heyrt af miklum áhuga úti í samfélaginu um að þessi leið verði reynd hér á landi og heilsugæslustöðvar hafa sýnt verkefninu mikinn áhuga og eru jafnvel að íhuga að koma með tilraunaverkefni í þessa veru. Ég spyr hæstv. ráðherra hvort hún kannist við þennan áhuga og hvort uppi séu áform um að gera hreyfingu að valkosti í heilbrigðisþjónustunni með því að taka upp útgáfu á svokölluðum hreyfiseðlum eða grænum seðlum eins og það var t.d. kallað í Noregi. Ef svo er spyr ég hvar, hvernig og á hvaða stigi undirbúningurinn sé. Svo væri auðvitað gaman að heyra líka hvort hæstv. ráðherra er ekki tilbúin til að beita sér fyrir því að þetta mál verði samþykkt í heilbrigðis- og trygginganefnd og farið verði í þá vinnu að koma með þennan valkost hér á landi sem hefur gefist svo vel annars staðar á Norðurlöndunum.