132. löggjafarþing — 91. fundur,  22. mars 2006.

Hreyfing sem valkostur í heilbrigðisþjónustu.

560. mál
[14:24]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Já, að sjálfsögðu munum við fylgjast með tilrauninni í Garðabæ. En almannatryggingar borga ekki neitt í henni. Það er ekki þannig að það er verið að nota … (ÁRJ: Ég sagði það ekki.) Nei, en í þingsályktunartillögunni sem hv. þingmaður flytur er sérstaklega tínt til að nefndin sem setja þarf á stofn, verði það samþykkt, eigi að kanna hvort almannatryggingar skuli taka þátt … (ÁRJ: Meti það.) Já, meti hvort almannatryggingar eigi að taka þátt í hreyfiáætlun sem læknar vísa á o.s.frv.

Ég tel að miðað við þá forgangsröð sem við höfum fyrir framan okkur og öll þau verkefni í heilbrigðisþjónustunni, sem eru brýn, eigi læknar að beina sjúklingum í hreyfingu og fræða sjúklinga. (Gripið fram í: Þeir gera það ekki.) Heilsugæslulæknirinn sem ég fer til gerir það. Fólki er bent á að hreyfa sig og er frætt miðað við þá sjúkdóma sem það hrjáir. Fólki er beint í hreyfingu og það hvatt til að hreyfa sig. Ég er ekki á því að við eigum að stíga það skref núna. Það kemur hugsanlega til greina síðar þegar við erum búin að vinna vel á forgangslistanum í heilbrigðisþjónustunni. En ég tel að það sé ekki efst á forgangslista að fara að borga læknum fyrir að skrifa hreyfiseðla eins og lyfseðla. Ég tel að þeir geti veitt slíka fræðslu án þess að fá borgað sérstaklega fyrir það.

Fólk er ágætlega upplýst í dag um gildi hreyfingar. Ég tel að fólk geti hreyft sig fái það hvatningu og hafi það áhuga á því, án þess að því sé eitthvað sérstaklega fylgt eftir af einhverjum aðilum. Ég tel að við höfum geysilega mörg úrræði í dag. Fólk getur hreyft sig hafi það áhuga. Það er mikil hvatning í gangi sem betur fer og mikil forvörn í því. Ég tel að þetta sé ekki efst á forgangslistanum, að fara borga af sköttum borgaranna í þetta verkefni.