Endurskoðun laga um málefni aldraðra.
Frú forseti. Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrennis var haldinn á Hótel Sögu laugardaginn 18. febrúar síðastliðinn. Hann sóttu yfir 200 manns. Þar voru samþykktar ýmsar áskoranir og ályktanir, m.a. áskorun til ríkisstjórnarinnar um að endurskoða lög um málefni aldraðra. Þeir telja að þau séu byggð á úreltum sjónarmiðum sem ekki eru í takt við nútímaleg viðhorf og séu dragbítur á eðlilega og nauðsynlega framþróun í málaflokknum. Ég ætla að lesa, með leyfi forseta, þessa ályktun:
„Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni haldinn á Hótel Sögu 18. febrúar 2006, skorar á ríkisstjórn að beita sér fyrir eftirfarandi:
Að nú þegar verði skipaður starfshópur til þess að endurskoða frá grunni lög nr. 125/1999, um málefni aldraðra. Hlutverk hans verði m.a.:
1. Að undirbúa flutning málefna aldraðra til sveitarfélaga.
2. Að marka heildarstefnu í málum aldraðra sem byggir á hugmyndafræði um jafnrétti og mannréttindi.
3. Að stjórnsýsla málaflokksins verði skýr og afdráttarlaus varðandi skyldur og ábyrgð opinberra aðila.
4. Að samræma ákvæði sem er að finna í hinum ýmsu lagabálkum og snerta málefni aldraðra.
5. Að marka þá stefnu í búsetumálum aldraðra að ýmsir valkostir verði til staðar í samræmi við óskir og þarfir eldri borgara, svo sem sambýli, þjónustuíbúðir, leiguíbúðir o.fl. Mikilvægt er að tryggja öryggi og sjálfræði aldraðra í sjálfstæðri búsetu.
6. Að setja skýr ákvæði um heimaþjónustu, dagdvöl (dagvistun), og hvíldarinnlagnir (skammtímavistun).
7. Að sett verði ákvæði í lögin um réttindagæslu aldraðra. Vitað er að réttindi þeirra eru oft fyrir borð borin, bæði utan stofnana sem og innan þeirra.
8. Að breyta fyrirkomulagi greiðslna íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum þannig að þeir haldi áfram fjárforræði sínu.“
Þetta er áskorun til ríkisstjórnarinnar frá Félagi eldri borgara. Í framhaldi af þessari áskorun spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra hvort hún hafi orðið við þessari áskorun eða einhver í ríkisstjórninni. Ég spyr hana:
Er fyrirhugað að endurskoða lög um málefni aldraðra?
Ég tel að í áðurnefndri ályktun sé bent á mjög brýn atriði mörg hver og áríðandi að menn færi þennan málaflokk til nútímahorfs, en samfélagið kallar á það í dag.