132. löggjafarþing — 91. fundur,  22. mars 2006.

Lækkun raforkuverðs.

618. mál
[14:44]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Guðjón A. Kristjánsson) (Fl):

Hæstv. forseti. Ég spyr um þróun raforkuverðs á Íslandi út frá stefnumótun sem lagt var upp með á árinu 1997 þegar Alþingi samþykkti byggingu álvers Norðuráls á Grundartanga í Hvalfirði og tilheyrandi orkusölusamninga sem gerðir voru milli Landsvirkjunar og fyrirtækisins og þeirrar stefnumótunar sem þar fylgdi með. Stefnumótunin birtist í nefndaráliti á þskj. 1272, máli 445, á 121. löggjafarþingi 1996–1997, og þar sagði m.a. á þá leið að rafmagnssamningur Landsvirkjunar við Norðurál væri hagstæður Landsvirkjun og hefði jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækisins. Þessi samningur um raforkusölu átti samkvæmt áliti meiri hlutans í iðnaðarnefnd og Landsvirkjunar að tryggja 3% lækkun árlega á orkuverði frá Landsvirkjun til almenningsveitna og þá hefði væntanlega einhver lækkun átt að fylgja inn í rafmagnsverð til almennings, enda var út frá því gengið, eins og segir í nefndarálitinu með þessum orðum, með leyfi forseta:

„Stuðlar hann þannig að því markmiði að raforkuverð til almenningsveitna lækki um 3% árlega frá árinu 2001 til ársins 2010 en haldist síðan óbreytt, en þetta telur meiri hlutinn mjög mikilvæga forsendu fyrir samþykkt málsins og gerir því ekki athugasemdir við þennan þátt málsins.“

Út af þessu var lagt á Alþingi og Alþingi samþykkti raforkustefnuna að þessu leyti og byggingu Norðuráls, og allt gott um það, en spurningin sem ég ber undir hæstv. iðnaðarráðherra er svohljóðandi:

Hvernig hefur ríkisstjórninni tekist að fylgja eftir þeirri stefnumörkun að raforkuverð skuli lækka um 3% á ári frá 2001–2010 eins og lagt var upp með þegar samþykkt var að byggja álver Norðuráls í Hvalfirði?

Ef þetta hefði gengið eftir skyldi maður ætla að orkuverð hér á landi hefði lækkað en í fróðlegu upplýsingariti eða skýrslu sem iðnaðarráðherra lét gefa út kemur m.a. fram á bls. 22 að orkuverð hefur nánast staðið í stað, a.m.k. hjá Rarik en að hluta til örlítið lækkað hjá Orkuveitu Reykjavíkur, frá 2001–2005. Ýmsar fleiri upplýsingar eru í þessari skýrslu sem ég mun koma að síðar.