132. löggjafarþing — 91. fundur,  22. mars 2006.

Álver og stórvirkjanir á Norðurlandi.

626. mál
[15:11]
Hlusta

Jón Kr. Óskarsson (Sf):

Frú forseti. Þetta eru athyglisverðar spurningar og athyglisverð svör frá hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sérstaklega svar við þriðju spurningunni. Ég trúi því ekki, hæstv. viðskipta- og iðnaðarráðherra, að Gallup hafi sett þetta upp á sitt einsdæmi, ég trúi ekki slíku þó svo að hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra hafi sagt slíkt.

Kannski getur Samfylkingin komið með svona fyrirspurnir á vegum ráðuneytisins fyrir sig í Hafnarfirði eða Reykjavík eða hvar sem er á landinu. Mér finnst þetta fáránlegt.